BJÓST HANN VIÐ EINHVERJU ÖÐRU??????????

Nú er kominn tími til að hann taki höfuðið út úr ra........ á sér og nái einhverri "smá" jarðtengingu.  Er hann virkilega í algjörri afneitum og svo  víðsfjarri ÞJÓÐINNI að hann sjái ekki hvernig hann og öll ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur, hefur vaðið yfir þjóðina á skítugum skónum, ekki einu sinni, ekki tvísvar heldur marg sinnis.  Og ekki nóg með það heldur var þjóðinni ekki einu sinni sagt frá hvað var í vændum í síðustu "kosningabaráttu".  Að sjálfsögðu gat engan órað fyrir þessu Samherjamáli, en FÓSTUREYÐINGAFRUMVARPIÐ var fyrirséð og ef kjósendur hefðu vitað af því að von væri á því, er ég nokkuð viss um að útkoma kosninganna hefði orðið önnur fyrir VG.  Sama er hægt að segja um ORKUPAKKA ÞRJÚ, þrátt fyrir að, að sagt sé að það mál hafi verið í undirbúningi í stjórnkerfinu í TÍU ÁR, voru afskaplega fáir utan stjórnkerfisins, sem höfðu heyrt á það minnst.  Ég er ansi smeykur um að Sjálfstæðisflokkurinn hefði lent á öðrum stað í kosningunum til Alþingis, ef fólk hefði haft vitneskju um þetta mál og hvernig forysta Sjálfstæðisflokksins "tæklaði" það mál og það í algjörri andstöðu við vilja grasrótar flokksins.  Hefðu kjósendur Framsóknarflokksins gert sér grein fyrir hringlandahætti og undirlægjuhætti forystu flokksins við forystusveit Sjálfstæðisflokksins og VG, er ég viss um að úrslit kosninganna fyrir Framsóknarflokksins hefðu orðið önnur........


mbl.is „Þetta er ekki góð könnun“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Er hann þá ekki afneitunarsinni? (Nýja tískuorðið!)

Sigurður I B Guðmundsson, 22.11.2019 kl. 21:38

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Jú,jú Sigurður....... wink

Jóhann Elíasson, 22.11.2019 kl. 23:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband