ALLT BENDIR ÞETTA Í SÖMU ÁTT...........

Það er allt sem bendir til þess að Rio Tinto komi til með að leggja álverið í Straumsvík niður í næstu framtíð.  Það er líka flest sem bendir til þess að ríkisstjórn Íslands sofi "Þyrnirósarsvefni" eða í það minnsta stingi hausnum í sandinn og vilji bara ekkert um málið vita.  Ætli stjórnvöld hér á landi verði álíka vel undirbúin fyrir lokun Álversins í Straumsvík eins og þegar Bandaríkjamenn fóru burt með herinn af Miðnesheiði 2006?  Hvað á að gera við rafmagnið og áhrifin á efnahagslífið verða gífurlega mikil svo ekki sé nú talað um áhrifin á atvinnulífið............


mbl.is Óviss framtíð álversins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Efnahagsleg áhrif sem til eru komin vegna kórónuveirunnar hafa stjórnvöld takmörkuð áhrif á. En þau efnahagslegu áhrif sem til munu koma vegna klúðurs í raforkumálum landsins bera stjórnvöld og þingheimur fulla ábyrgð á.

Tómas Ibsen Halldórsson, 7.4.2020 kl. 10:19

2 Smámynd: Örn Gunnlaugsson

Svona er ESB nákvæmlega rétt lýst. Falsanir þessara vottorða eru að þeirra forskrift og Landsvirkjun leggst svo lágt að taka þátt í svindlinu. Þetta verður til þess að traust til fyrirtækisins verður álíka mikið og til þeirra sem segjast þykja góð skemmd skata en ljóst er að þeir ljúga þá öllu öðru líka. Við vitum að í Austantjaldslöndunum er hægt að fá vottorð fyrir hverju sem er en Vesturlönd áttu víst að vera eitthvað skárri hvað áreiðanleka varðar. Er ekki rétt að taka Veðurstofuna af fjárlögum og hún afli þess í stað tekna með því að gefa út veðurvottorð sem sýna að hér á landi sé ávallt sól í heiði, snjói aldrei og hiti sé ávallt á bilinu 20-25 gráður, já og ávallt heiðskírt. Þá gæti stofan einnig gefið út fyrirsjánleikavottorð um að norðurljósin muni sjást á ákveðnum tíma og stað og jafnvel að skaðlaus ofurkóronuveira verði sýnileg í diskóljósum á hinum og þessum stöðum, td. yfir Bláa lóninu til að koma skítblönkum ferðþjónustufyrirtækjum aftur á lappirnar. Ætli þeir sem stjórna þessum vitleysisgangi hafi allir fengið prófgráðurnar sínar upp úr Cocoa Puffs pakka, eða kannski hafa þeir bara keypt þær frá aðilum á borð við þá sem selja fölsuð upprunavottorð ? Gáfnafarið bendir nú oft ekki til annars en að gráðurnar hafi verið fengnar með vafasömum hætti.

Örn Gunnlaugsson, 7.4.2020 kl. 10:24

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já þetta er alveg hárrétt hjá þér Tómas. Er ekki full ástæða til þess að ríkisstjórnin sé vakandi fyrir því til hvaða aðgerða er hægt að grípa til að minnka skaðann sem kórónaveiran hefur á efnahagslífið?????????

Jóhann Elíasson, 7.4.2020 kl. 10:39

4 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Klúður í raforkumálum mun að öllum líkindum kosta nokkur þúsund störf í Hafnarfirði og nágreni.

Tómas Ibsen Halldórsson, 7.4.2020 kl. 10:52

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já Örn, þessar prófgráður í Cocoa Puffs- og Cheerios pökkunum eru alveg mögnuð fyrirbæri.  Mér hefur bara fundist að það megi alveg flokka ESB með kommúnistaríkjum, í það minnsta starfar ESB á sömu línu og kommúnistar og það eru til margar bækur þess efnis að ESB starfi eftir hugmyndafræði nasista og séu upprunnir úr þeim ranni.  Ég skrifaði samantekt, upp úr nokkrum bókum um þau mál, ef þú sendir mér e-mail á vesturholt@simnet.is, skal ég senda þessa samantekt til þín.

Jóhann Elíasson, 7.4.2020 kl. 10:54

6 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Þetta er allt planað Jóhann. Það tókst ekki að knésetja okkur 2008 vegna

þess að Íselndingar höfðu forseta sem stóð með sinni þjóð.

Það sama er ekki hægt að segja í dag. Við erum með alla sömu leikarana og voru

2008 tilbúnir að setja á okkur ICESAFE. Í dag erum við með á Bessastöðum ESB sleikju og

yfirlýstan ESB sinna sem þegar er búni að sýna sitt rétta andlit með samþykkt O3.

Forseti með 37% á bak við sig er EKKI forseti þjóðar. Tæp 70% af þjóðinni kaus hann EKKI.

Nú eru allar leiðir færar fyrir ESB að koma Rio Tintó til fjandans og, já, ákkúrat,

sæstrengur verðu lagður og þar með er búið að loka fyrir það að Íslendingar ráði nokkru

sinni aftur sínum raforkumálum. Þökk sé apahjörðinni á þingi. Landráðafólk og vægt sagt.

Sigurður Kristján Hjaltested, 7.4.2020 kl. 13:22

7 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þakka þér fyrir kjarnyrta og mjög góða athugasemd.  Þetta er allt hverju orði sannara, sem þú skrifar.  Nú höfum við tækifæri til að kjósa almennilegan forseta á Bessastaði, mér er sagt að Guðmundur Franklín Jónsson ætli að fara í forsetaframboð.  Þar fer maður sem auk þess að vera með yfirburða þekkingu og reynslu af efnahags- og alþjóðaviðskiptum, kemur ekki til með að vera "strengjabrúða" eins eða neins og er með "bein í nefinu".  Ég held að þessi covid-19 veira eigi eftir að verða til þess að GRUNDVALLARBREYTING verði á þjóðfélaginu og heimsbyggðinni allri.  Jafnvel held ég að "alþjóðavæðingin", sem hefur beðið algjört skipbrot hlýtur að verða endurskoðuð all hressilega og það er mitt mat að ESB komi til með að heyra sögunni til.......

Jóhann Elíasson, 7.4.2020 kl. 15:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband