"YFIRSKÍTADREYFARINN" Á RÚV NÁÐI SÉR EKKI Á STRIK Í KASTLJÓSINU...........

Eða réttara sagt: Guðmundur Franklín Jónsson hleypti honum EKKI af stað, þrátt fyrir að stjórnandi Kastljóssins, gerði nokkrar misheppnaðar tilraunir til þess að ná Guðmundi niður á það "plan", sem hann hefur ítrekað reynt við aðra viðmælendur sína, en gekk ekki í þetta sinn.  Guðmundur Franklín stóð sig alveg einstaklega vel í þessum þætti og ekki kæmi það mér á óvart að hann hafi "sópað" til sín nokkuð miklu fylgi, eftir frammistöðu sína í þessum þætti.  Núverandi forseti er ekki öfundsverður af því að lenda á eftir Guðmundi Franklín Jónssyni, eftir frammistöðu hans í kvöld.......


mbl.is „Ég hugsa að þetta fari 53 – 47“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Í síðustu blogg færslu þinni "Hvers vegna ég kýs Guðmund Fraklín á Laugardaginn" (Fyrirsögnin hefði allt eins geta verið: Þess vegna kýs ég ekki Guðna) telur þú upp nokkur atriði þar sem þú gagnrýnir störf Guðna Th. forseta réttilega.   Nú velti ég fyrir mér hvort þessi sami Kastljósmaður spyrji Guðna um þessi atriði sem þú minntist á í grein þinni???

Sigurður I B Guðmundsson, 25.6.2020 kl. 10:56

2 identicon

Satt segirðu. Raunar slökkti ég fyrir, þegar Einar talaði, nenni ekki að hlusta á blaðrið í honum, og þykir hann leiðinlegur, en ég hlustaði á Guðmund. Hann var ágætur. Það er annars leiðindakækur af hálfu Kastljóssmanna að vera sífellt að taka fram í fyrir viðmælendum sínum, sama hverjir þeir eru. Haft var einhvern tíma eftir Jónasi Jónassyni útvarpsmanni, að spyrlarnir eigi að þegja, eftir að þeir hafa lokið máli sínu, og leyfa viðmælendunum að tala óhindrað og svara því, sem þeir voru spurðir að. Silla, dóttir hans, reynir þetta og tekst oft vel upp, en þetta Kastljóssfólk er alveg afleitt að þessu leyti, getur aldrei haldið sér saman, þarf sífellt að grípa fram í, og virðist helst vilja hlusta á sjálft sig, frekar en viðmælendurna. Sennilega taka þau þetta upp eftir Agli Helgasyni, sem er hryllingur, hvað þetta varðar, og er ekki besta fyrirmyndin, hvað þetta snertir. - Varðandi skoðanakannanirnar, þá vitum við það, að við gætum látið gera skoðanakannanir, eða gert þær sjálf, og spurt aðeins þá, sem við vitum, að munu örugglega kjósa Guðmund, og láta Guðna svona fljóta með með nokkur atkvæði. Það væri held ég heldur haldlitlar svoleiðis kannanir og lítið að marka þær, en þannig held ég, að þessar kannanir séu búnar til í flestum tilvikum, því miður. Ég er löngu hætt að taka nokkurt mark á skoðanakönnunum, því að þær eru svo misvísandi og oft á tíðum vitlausar. Það kemur í ljós vanalegast, þegar byrjað er að telja upp úr kössunum að kvöldi kjördags. Við skulum því vona það allra besta. Það gæti farið svo, að þeir verði jafnvel nokkuð jafnir. Kannske og vonandi verður Guðmundur yfir. Maður veit aldrei, og verðum að vona það besta, eins og ég sagði.

Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 25.6.2020 kl. 11:05

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þú segir nokkuð Sigurður cool.  Fyrir það fyrsta efast ég stórlega um að "skítdreyfarinn" lesi bloggið mitt wink.  En að öllu gríni slepptu á ég ekki von á öðru en að Guðna verði pakkað í bómull og fái bara að bulla um sína sagnfræði ALLAN TÍMANN óáreittur og fái ekki á sig eina einustu óþægilega spurningu......

Jóhann Elíasson, 25.6.2020 kl. 12:18

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Góð athugasemd hjá þér Guðbjörg Snót Jónsdóttir.  Mér virðist sem stuðningurinn við Guðna innan RÚV, sé orðinn grímulausari og augljósari nú í seinni tíð.  Og ég þori  að veðja að það eigi eftir að koma í ljós í þættinum í kvöld...

Jóhann Elíasson, 25.6.2020 kl. 12:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband