ERUM VIÐ AÐ VERÐA VITNI AÐ LOKAMETRUNUM Í LÍFI ICELANDAIR???????

Eftir "darraðardans" síðust vikna, verður ekki dregin önnur ályktun og satt best að segja finnst mér óvissan um framtíð fyrirtækisins hafa staðið alveg ótrúlega lengi og og verið lengt í hengingarólinni mun lengur en hollt var.  Nú er deilan orðin svo hörð að ekki verður séð að lífeyrissjóðirnir, verði tilbúnir til að leggja fjármagn í að "rétta kúrsinn af" hjá þessu fyrirtæki og breikka þannig bilið milli stjórnar, stjórnenda og aftur á mót launafólks hjá fyrirtækinu i andstöðu við raunverulega eigendur lífeyrissjóðanna.  Ég hef löngum talað fyrir því að fyrirtækið verði bara látið fara í gjaldþrot.  Síðan verði stofnað ríkisflugfélag á "rústunum", skipuð  verði alveg ný stjórn og ráðnir inn nýir hæfir stjórnendur og byrjað alveg á núlli..........


mbl.is Vinir hafi bolað henni úr starfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Örn Gunnlaugsson

Jóhann, sennilega á Icelandair ekki möguleika. Við búum við þann raunveruleika að verkalýðsfélög geta ráðið örlögum starfsgreina. Við ætlum nefnilega að hafa kjör umfram það sem reksturinn getur borgað, sama hvað. Ég held þú vitir alveg hvað ég er að tala um en þú varst í sömu starfsgrein og ég þó aldrei höfðum við verið samskipa. Það verður blásið til sniðgöngu gagnvart Icelandair erlendis og félagið þannig knésett. Þetta þykir löglegt á Íslandi en ætti að teljast til hryðjuverka. Er ekki orðið tímabært að takmarka starfsfrelsi verkalýðsfélaga ?

Örn Gunnlaugsson, 18.7.2020 kl. 18:42

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þetta held ég að sé alveg hárrétt hjá þér Örn en það sem er merkilegra er að það virðist enginn "vilja" sjá hvað er að gerast og kannski enn síður að viðurkenna það..........

Jóhann Elíasson, 18.7.2020 kl. 21:01

3 identicon

Eruð þið félagarnir ekki sáttir þá við hvernig stjórn Herjólfs sneri á helv.... hann Jónas Garðars og félaga SSÍ?

thin (IP-tala skráð) 19.7.2020 kl. 22:35

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

"thin" (Þunnildi), það er ekkert til umræðu hér!!!!!!!

Jóhann Elíasson, 20.7.2020 kl. 11:24

5 identicon

Svíður gamla sjóaranum hvernig komið er fram við pungana í Sjómann........?

thin (IP-tala skráð) 20.7.2020 kl. 17:08

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Nei, mér finnst þetta ekki þess virði að hugsa um þetta.  Allt þetta dæmi með Landeyjahöfn er sorgarsaga og þetta er einn angi þeirrar sögu og ég nenni bara ekki að vera ergja mig á þessu kjaftæði.......

Jóhann Elíasson, 20.7.2020 kl. 17:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband