EKKI NOKKUR ÁSTÆÐA FYRIR ÞVÍ AÐ "RÍKIÐ" SÉ AÐ STANDA Í FJÖLMIÐLAREKSTRI

Ef það skyldi hafa farið framhjá einhverjum, þá eru aðstæðurnar í dag gjörólíkar því sem var þegar útvarpið kom hingað til lands árið 1930 og svo þegar sjónvarpið kom hingað og strax þegar einokun ríkisins á rekstri fjölmiðla tók enda, árið 1986, opnaðist fyrir það að breytingar gætu orðið á starfsemi RÍKISÚTVARPSINS.  Auðvitað er eina vitið að bjóða "ÖRYGGISHLUTVERKIÐ", sem RÚV er að sinna og enginn veit almennilega hvað er, út og um leið að skilgreina það almennilega.  Ekki virtist öryggið skipta miklu máli í SUÐURLANDSSKJÁLFTANUM hérna um aldamótin hjá RÚV, þá voru þeir hjá RÚV svo uppteknir af að sýna frá HM í knattspyrnu, að það hvarflaði ekki að þeim að segja landsmönnum frá þessu (þeir mátu þetta ekki sem ógn við öryggi landsmanna.  Hvaðan á það mat að koma???), fyrstu  fréttir komu frá Stöð2 þá.  Hvað skyldi RÚV gera við allt það fjármagn, sem stofnunin fær frá landsmönnum og hvernig skyldi rekstrinum vera háttað þar á bæ???????


mbl.is Geti vel sinnt almannaþjónustu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Öryggishlutverk ríkisútvarpsins hefur í gegnum tíðina fyrst og fremst falist í því að segja hvað klukkan er.

Magnús Sigurðsson, 15.11.2020 kl. 19:08

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það eru ALLIR útbúnir þannig að þeir vita hvað klukkan er.  Enn eitt dæmið um hversu tímarnir hafa breyst og menn upplifa það að engin þörf er fyrir Ríkisútvarpið.......

Jóhann Elíasson, 15.11.2020 kl. 20:01

3 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Ætli þeir fari ekki bráðum í blaðaútgáfu!!

Sigurður I B Guðmundsson, 15.11.2020 kl. 22:09

4 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Þetta er alveg hárrétt hjá þér Jóhann, "það eru allir þannig útbúnir , , , ". Þetta er svo afgerandi að ég hef hvorki þurft á klukku að halda né hlusta á ríkisútvarpið í áraraðir til að vita hvað klukkan er og leiðist því frekar að vera skildaður til að greiða ríkinu óumflýjanlegt árgjald ef ég skildi vilja fá að vita það sem ég vissi þá þegar.

Magnús Sigurðsson, 16.11.2020 kl. 06:15

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég vona nú að Ríkið fari nú ekki að álpast í blaðaútgáfu Sigurður, nóg er nú vitleysan fyrir............

Jóhann Elíasson, 16.11.2020 kl. 09:49

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Magnús,  ég tek undir hvert orð hjá þér.  Um helgina gerðust undur og stórmerki, ég hætti formlega að horfa á "Silfrið"...

Jóhann Elíasson, 16.11.2020 kl. 09:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband