LOKSINS.........

Þetta "fáránlega" nafn (ekki veit ég hverjum hefur dottið þetta í hug, sá ætti að fá "Fálkaorðuna" FYRIR FÁLKASKAP ég bið Fálkana afsökunar á samlíkingunni).  Ég er nú ekki alveg sáttur  við að nafnið Icelandair fari á innanlandsflugið, HVAÐ VAR AÐ NAFNINU FLUGFÉLAG ÍSLANDS??????


mbl.is Breytt nafn hugsanlegt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Kannski kennitölu flakk????

Sigurður I B Guðmundsson, 24.11.2020 kl. 10:50

2 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Ég er þér algerlega sammála Jóhann. Flugfélag Íslands er gott íslenskt nafn á íslensku flugfélagi. Ég gat aldrei skilið tilgang með nafninu sem nú á loks að leggja niður. Sama má raunar segja um mörg önnur íslensk fyrirtæki sem bera erlend nöfn.

Tómas Ibsen Halldórsson, 24.11.2020 kl. 10:58

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég held nú að ekki sé um kennitöluflakk að ræða þarna Sigurður, heldur minnimáttarkennd Íslendinga hafi með þessa vitleysu að gera........

Jóhann Elíasson, 24.11.2020 kl. 11:11

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Tek algjörlega undir með þér Tómas.  Með þessi erlendu nöfn, sem eru á mörgu Íslenskum fyrirtækjum, vísa ég til fyrri athugasemdar.......

Jóhann Elíasson, 24.11.2020 kl. 11:13

5 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Sæll Jóhann ég er hjartanlega sammála þér í þessu og tek undir með ykkur að þessi minnimáttarkennd margra íslenskra fyrirtækja gagnvart íslenskunni er búin að vera stórundarleg vegferð.

Magnús Sigurðsson, 24.11.2020 kl. 12:29

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þakka þér kærlega fyrir Magnús.  Það er ánægjulegt að sjá, eins og athugasemdir Sigurðar, Tómasar og Magnúsar sýna, að einhverjir skuli hafa taugar til málsins og Þjóðlegra hefða........

Jóhann Elíasson, 24.11.2020 kl. 13:29

7 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Algjörlega samála þér Jóhann.

Þetta fíflalega nafn Air Iceland Connect, er lýsandi dæmi um þá yngri

kynslóð sem telur að með því að sletta fram ensku í nöfnum fyrirtækja

þá virki þau alþjóðlegri. Því miður er það ekki svo og margir vinir

mínir erlendir fannst stórfurðulegt þegar nafninu var breytt.

Spurningin var, er þetta ekki Íslenskt félag..??

Áhrifin virkuðu þver öfugt. Flugfélag Íslands er virðulegt

nafn og hin nafnabreytingin móðgun við alla sem unnið og unnað

hafa Flugfélagi Íslands í gegnum árin.

Svo einfallt er það.

Sigurður Kristján Hjaltested, 25.11.2020 kl. 10:26

8 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þakka þér fyrir innlitið Sigurður Kristján og stórgóðar athugasemdir og ég þori alveg að fullyrða það að almenningur í þessu landi er þér algjörlega sammála.........

Jóhann Elíasson, 25.11.2020 kl. 11:59

9 identicon

Tek undir með Sigurði, ég held að þetta hafi verið tilraun til að höfða til erlendra ferðamanna.

Trausti Geir Jónasson (IP-tala skráð) 25.11.2020 kl. 19:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband