BRETAR YFIRGEFA ESB UM ÁRAMÓTIN OG SKIJA ESB EFTIR SAMNINGSLAUST....

Og þar með verður dauðadómur ESB staðfestur.  En svo er spurningin HVENÆR aftakan fer fram, því eins og allir vita þá geta menn verið árum saman á "dauðadeild" áður en dauðadómnum er fullnægt.  Þannig að "afturganga" ESB getur verið að angra okkur í mörg ár, því ég get ekki séð neinn stjórnmálamann hér á landi sem hefur bein í nefinu til þess að losa landið úr greipum ESB....


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Nákvæmlega Jóhann hárrétt hjá þér!!!!

Tómas Ibsen Halldórsson, 16.12.2020 kl. 14:35

2 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Sæll Jóhann, ég á eftir að sjá breta ganga úr ESB undir forystu Jhonsons, við skulum ekki gleyma því að breska þjóðin ákvað að ganga úr ESB árið 2016, síðan hefur allt verið reynt til að komast undan þeirri ákvörðun með því að koma á einhverskonar samningi sem líkist einna helst EES, sem er eins og við þekkjum hann ekki hótinu skárri. En bretar hafa samt sem áður verið lausir við Schengen drauginn.

Það styttist í áramót, þá kemur í ljós hvort um enn eina frestunina verður að ræða, eða hvort breskir stjórnmálamenn taka slaginn, ef þeir taka hann þá gæti verið styst í andlátið.

Magnús Sigurðsson, 16.12.2020 kl. 16:17

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég hef fulla trú á Boris Johnson, hann tók við af Theresu May, sem í rauninni vildi ekki ganga úr ESB, þótt hún léti sem svo og henni tókst að sigla öllu í strand og að sjálfsögðu endaði með því þegar hún var búin að klúðra öllu sem hægt var að klúðra að Bretar losuðu sig við hana og Boris Johnso tók við.  Og eftir það fóru hlutirnir að gerast þegar alvara var komin í málið og alvörumaður kominn í Downingstræti 10.  Ég er algjörlega sammála með að EES samningurinn er mjög litið skárri en ESB......

Jóhann Elíasson, 16.12.2020 kl. 16:43

4 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Við skulum vona að þú hafir rétt fyrir þér Jóhann varðandi Boris Johnson en í raun frestaði hann útgöngu breta þar til núna um áramótin.

Magnús Sigurðsson, 16.12.2020 kl. 17:28

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já, getur maður nokkuð annað en beðið og vonað.........

Jóhann Elíasson, 16.12.2020 kl. 19:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband