ÞESSI MAÐUR Á SÉR ENGAN LÍKAN OG HANN VERÐUR SENNILEGA ALDREI "TOPPAÐUR"...

Það kemst örugglega ekki nokkur maður með tærnar þar sem hann hefur hælana í óskammfeilni, hroka og undirferli.  Örugglega væri  hægt að telja upp marga "eiginleika" hans en það væri allt of mikið mál svo ég sleppi því.  En það er augljóst að hann er að búa sig undir langan "drulluslag" en við eigum eftir að sjá að botninum er EKKI NÁÐ í glórulausum ásökunum hans.......


mbl.is Þorsteinn Már kærir Jóhannes Stefánsson
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Grímur Kjartansson

Ég skil ekki enn hvað fólk er hneykslað á að það þurfi að múta embættismönnum í Namibíu

Hér er sænski RUV-Kveikur að tala við fólk í Indlandi og þeir fullyrða að þar geti Scania ekki selt einn einasta vörubíl nema múta einhverjum

Hör agenterna berätta om Scania: “Inte en buss såldes utan mutor” | SVT Nyheter

Grímur Kjartansson, 9.3.2021 kl. 21:34

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Komdu sæll Grímur og þakka þér fyrir innlitið og athugasemdina.  Ég held að málið snúist ekki um það að neinn sé "hissa" á því að mútur séu greiddar heldur a upphæðunum og umfangi þessa máls.  Sem dæmi má nefna að kunningi minn sem var vélstjóri á skipi sem fór þarna niður eftir til Namibíu sagði mér að þeir hefðu greitt hafnarstjóranum fimm jólakökur fyrir að þurfa ekki að liggja við ankeri á ytri höfninni og bíða eftir afgreiðslu í 7-15 daga, heldur voru þeir teknir fram fyrir röðina og fengu afgreiðslu strax.  Það er enginn að gera athugasemd við svona lagað en þetta hjá Samherja er af allt annarri stærðargráðu........

Jóhann Elíasson, 9.3.2021 kl. 23:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband