ER EKKI VERIÐ AÐ VEKJA UPP ÓÞARFA ÁHYGGJUR HJÁ GRINDVÍKINGUM?????

Eru þeir ekki búnir að upplifa mikið meira en nóg, ekki bara á þessu ári heldur því síðasta líka?  Auðvitað er ágætt að hafa gát á öllum möguleikum opnum en það er óþarfi að hlaupa með alla hugsanlega möguleika á gosi í fjölmiðla, án þess að geta þess um leið að þessi möguleiki KOMI SÍST TIL GREINA AF ÞEIM SVIÐSMYNDUM SEM KOMA TIL GREINA.  Almannavarnir hljóta að gera áætlanir um rýmingu bæjarins, miðað við ALLAR þessar sviðsmyndir og það er bara óþarfi að allt komi fram í fjölmiðlum.......


mbl.is Eldgos æ líklegra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Hringd til skólasystur minnar í Grindavík í gær,hún er orðin nokkuð þreytt á þessum titringi sem von er,þar sem líkaminn er nú ekki eins og nýsleginn túkall.

Helga Kristjánsdóttir, 10.3.2021 kl. 21:58

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Mér finnst að það sé verið að bæta gráu ofan á svart með því að fjölmiðlar segja að hætta sé á gosi í Grindavík.  Ofan á þessa eilífu skjálfta sem eru alltaf að ríða yfir.  Ef kemur gos þá verður bara tekið á því þegar að því kemur.....

Jóhann Elíasson, 11.3.2021 kl. 06:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband