OG Í ÞETTA "MIÐSTÝRINGARAPPARAT" VILJA ÝMSIR HEILALAUSIR AÐILAR SENDA ÍSLAND Í.....

Eru menn virkilega svo HEILADAUÐIR eða bara MEÐ SKÍT Á MILLI EYRNANNA, AÐ ÞEIR SJÁI ÞAÐ EKKI AÐ ÞEIR ERU AÐ FREMJA MESTU  SVIK VIÐ LAND OG ÞJÓÐ SEM HÆGT ER?  Fyrir nokkru síðan tók ég saman grein um tengsl Nasista og ESB SJÁ HÉR, þessi samantekt er unnin upp úr breskum bókum og ekki hefðu þessar bækur fengist gefnar út ef heimildir hefðu orkað tvímælis.  Ég sé ekki betur en við séum fyrir löngu farin að upplifa þetta og hér fáum við bara enn frekari staðfestingu á því sem í þessari samantekt stendur.... 


mbl.is ESB bannar flutning bóluefna til Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem ESB reynir að brjóta gegn EES samningnum. Munum eftir Icesave málinu.

Guðmundur Ásgeirsson, 24.3.2021 kl. 22:01

2 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Og út á ESB ætla samfylking,píratar og viðreisn að ná hér meirihluta. 

Sigurður I B Guðmundsson, 24.3.2021 kl. 22:29

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Sigurður. Þú hefur greinilega ekki hugmynd um hver stefna Pírata er varðandi ESB. Þér til fróðleiks gengur hún út á að málið verði útkljáð í þjóðaratkvæðagreiðslu en ekki Alþingiskosningum. Þannig er það ekki flokksins að taka slíka ákvörðun heldur þjóðarinnar og í raun má segja sem svo að best væri ef allir flokkar hefðu þá stefnu þar sem hún er lang lýðræðislegust.

Guðmundur Ásgeirsson, 24.3.2021 kl. 22:42

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Guðmundur, þó svo að það sé í stefnuskrá Pírata að eigi að afgreiða málið í þjóðaratkvæðagreiðslu, þá er ekkert gefið að sú verði raunin þegar upp er staðið.  Þegar samþykkt var á Alþingi að Tryggingastofnun Ríkisins fengi aðgang að bankareikningum  aldraðra og öryrkja, samþykkti Helgi Hrafn Gunnarsson það vegna þess að Össur Skarphéðinsson "sagði" honum það (Helga Hrafni vannst ekki tími til  að lesa allt frumvarpið, eða með því afsakaði hann gjörðir sínar).  Margir kalla Pírata í dag "Litlu Samfylkinguna".........

Jóhann Elíasson, 25.3.2021 kl. 06:41

5 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Jóhann. Geturðu bent mér á hvenær eða hvar var samþykkt á Alþingi að ríkið fengi aðgang að bankareikningum aldraðra og öryrkja? Til dæmis með laganúmeri eða tengli? Bara svo það sé á hreinu býr ekkert meira að baki því en að mig langar að vita meira um þetta og ef það er satt þá er það mjög alvarlegt brot á bankaleynd.

Ástæða þess að margir kalla Pírata í dag "litlu Samfylkinguna" er ekki út af raunverulegum pírötum heldur krötunum sem hafa smyglað sér inn í þann flokk undir fölsku flaggi. Ég segi þetta vegna þess að ég hef raunverulega upplifað tilburði þeirra til að snúa niður góð málefni sem samræmast grunnstefnu Pírata, en eru "óhentug" fyrir evru-heilaþvottar-stefnuna.

Guðmundur Ásgeirsson, 26.3.2021 kl. 00:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband