COVID 19, "THE GREAT RESET" OG BÓLUSETNINGARNAR......

Ég var að að fara lauslega yfir bókina „COVID-19: THE GREAT RESET“ eftir Klaus Schwab, stjórnarformann og stofnanda „Economic Forum“ sem stendur að árlegri heimsráðstefnu um efnahag heimsins í Davos í Sviss og meðhöfundur er Thierry Malleret en hann er „hagfræðilegur greinandi innan „Economic Forum““ og geltir nokkuð hátt þegar honum er sigað.  Það sést nokkuð vel á þessari bók að það er Klaus Schwab, sem ræður ferðinni algjörlega en Thierry Malleret gjammar bara þegar honum er sigað og er bara þægur og gerir það sem honum er sagt.  Bókinni er skipt upp í þrjá meginkafla og síðan er dregin ályktun af því sem er fjallað um í þessum köflum.  Þessir aðalkaflar eru:  1.  MACRO RESET.  Í þessum kafla er fjallað um „nauðsyn“ þess að fara í  þetta RESET í alþjóðlegu samhengi með tilliti til; mismundi hagkerfa, mismunandi félagskerfa, umverfislegra þátta og tæknilegra þátta.  Út frá þessum þáttum er komist að þeirri niðurstöðu að það eigi að þurrka út öll landamæri (leggja þjóðríkin niður) og koma öllum heiminum undir eina stjórn.  Og svo er komist að þeirri niðurstöðu að covid-19 faraldurinn hafi sannað enn betur þörfina á þessari breytingu.  Þetta er stærsti kaflinn í bókinni og þar kemur nokkuð margt í ljós sem ég hélt áður að væu bara hreinar samsæriskenningar og oft á tíðum lagði ég bókina frá mér og hugsaði bara með mér "Er ég að lesa einhverja vísindaskáldsögu"?  2.MICRO RESET (IÐNAÐUR OG VIÐSKIPTI).  Vegna þess að það er draumsýn „glóbalistanna“ að leggja þjóðríkið niður þá er ekkert fjallað um fjallað um þetta RESET út frá sj´narhóli þjóðríkjanna heldur er fjallað um að öll framleiðsla og viðskipti séu  alþjóðleg og undir einni stjórn og út frá því verði allt regluverk einfaldað og tollar milli landa verði afnumdir.  Allt þetta lítur ágætlega út á blaði en ég held að flestir sjái að þetta er ekki framkvæmanlegt.  3.  INDIVIDUAL RESET (ENDURRÆSING EINSTAKLINGINS).  Samkvæmt því sem þessi kafli segir þá er það ætlunin að „forrita“ einstaklinginn þannig að hann verði algjörlega undirgefinn ákveðnu yfirvaldi, eigi ekki neitt og leigi bara það sem hann þarf á að halda.  Mikið er lagt upp úr því í þessari bók að „selja“ þessa hinum almenna lesanda þessa hugmynd og er þetta borið þannig á borð að eingöngu séu jákvæðir þættir við þetta og engi neikvæði þættir séu til við þessa hugmyndafræði.

Ég hef séð víða á netinu og á “kommentakerfum netmiðlanna“ og svo hér á blogginu, að menn afgreiða þetta „GREAT RESET“ sem einhverja SAMSÆRISKENNINGU en nú er komin út bók eftir þann sem er „höfundur“ þessarar kenningar og það sem meira er HANN SEGIR ÞAÐ AÐ THE „GREAT RESET“ SÉ Í FULLUM GANGI.  Er nema von að það vakni upp spurningar um það hvað sé eiginlega í gangi?  Eftir að ég las þessa bók spurði ég mig þeirrar spurningar, hvort COVID-19 væri hluti af þessu „plotti“ og hvort Kínverjar séu þarna þátttakendur?  Hefur virkilega enginn veitt því athygli að KÍNA ER EINA LANDIÐ Í HEIMINUMÞAR SEM ER HAGVÖXTUR OG ÞAÐ SEM MEIRA ER HAGVÖXTURINN Í KÍNA ER SVO MIKILL AÐ HANN Á SÉR ENGIN FORDÆMI Á SÖGULEGUM TÍMA.  Ég hef  lengi verið á þeirri skoðun og sú skoðun styrktist eftir að hafa lesið þessa bók, að Kínverjar hafi ræktað þessa veiru á tilraunastofu.  Og jafnframt þróað bóluefni gegn henni.  Svo þegar ALLT var tilbúið, hafi þeir sleppt veirunni lausri og til þess að allt liti nú betur útgagnvart umheiminum voru nokkur þúsund „látin“ deyja en „topparnir“ og mannskapurinn sem var mikilvægur ríkinu, hafi verið bólusettir.  En hvað er COVID-19?  Það veit í rauninni enginn nema „framleiðandi“ veirunnar og svo þykjast menn vera komnir með BÓLUEFNI“ gegn einhverju sem ENGINN EÐA FÁIR ÞEKKJA.  OG HVAÐ ER Í ÞESSU „GUTLI“ SEM ER VERIÐ AÐ DÆLA Í HEIMSBYGGÐINA?  Það hefur reyndar lekið út að í þessum „tímamótabóluefnum“ séu DNA-breytandi efni og sumir vilja meina að í þeim séu  líka „örflögur“ sem auðvelt sé að tengja við tölvur og þannig sé auðvelt að stjórna þeim bólusettu, en auðvitað er þetta afgreitt sm einhverjar SAMSÆRISKENNINGAR.  En gleymum því ekki að þessi svokölluðu bóluefni voru þróuð á átta mánuðum og fengu svokallað neyðarleyfi og það felur í sér að  framleiðandanum ber SKYLDA til þess að UPPLÝSA þann sem er bólusettur um INNIHALD efnisins og hann á að hafa val um annað bóluefni.  En þannig er það nú ekki alveg, fólk er „BOÐAГ í bólusetningu, enginn hefur val um neitt annað bóluefni, ÞETTA HEITIR AÐ BEITT SÉ HRÆÐSLUÁRÓÐRI.  Við Nürnbergréttarhöldin, yfir nasistum, eftir seinna stríð voru nasistarnir spurðir að því hvernig þeim hafi tekist að sannfærra heila þjóð um að fylgja nauðsyn þess að fylgja þeim að málum (Þjóðverjar eru almennt talið mjög skynsamir og velmenntuð þjóð), svarið var einfalt: VIÐ GERÐUM ÞJÓÐINA BARA HRÆDDA OG BEITTUM SVOKALLAÐRI ÓTTASTJÓRNUN.  Nú er bara gengið skrefinu lengra, veirunni var bara sleppt lausri og fólk bara GRÁTBIÐUR um bólusetningu og svo er gengið enn lengra í þessu fólki er sagt að það sé „skortur“ á bóluefni en svo svona algjörlega er framleiðslan komin af stað aftur og það sem meira er „afköstin“ í framleiðslunni hafa allt í einu margfaldast.  OG ENGUM FINNST NEITT ATHUGAVERT VIÐ ÞESSAR ÚTSKÝRINGAR .....................


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Það sem þú ert að skrifa hér Jóhann eru engar samsæriskenningar heldur ertu að fjalla um samsæri sem heimselítan er að brugga gegn almennum jarðarbúum. Þjóðir án landamæra er nokkuð sem "No Border" samtökin hafa verið að berjast fyrir, en þau eru stofnuð af George Soros sem fjármagnar þau um heim allan og höfum við ekki farið varhluta af því hér á landi. GS er einn af þeim sem eru í þessu Economic Forum, þar eru einnig Karl Bretaprins, Bill Gates og margir aðrir sem taldir eru vellauðugir. Á hverju ári er fullt af stjórnmálamönnum, þar á meðal íslenskum, frægu fólki á ýmsum sviðum þjóðlífsins boðið til Davos og allt látið líta svo vel út í augum almennings, en allar þeirra áætlanir eru ekki eitthvað sem kemur almenningi að góðu þegar upp er staðið. Mér sýnis Sameinuðu þjóðirnar vera hluti af þessu og Parísarsáttmálinn um hlýnun af mannavöldum.

Þétting byggðar er hluti af þessu, láta fólk búa þétt saman í litlum íbúðum á litlu svæði þar sem umferðarmannvirki eru lítil eða engin. Allt miðar þetta að því sem Bill Gates hefur margoft sagt, en það er að fækka fólki verulega á jörðinni, þeim finnst við vera fyrir þeim eða eins og Richard Branson sagði um einskis nýtt fólk sem borðar mat hinna útvöldu, en þannig líta þeir á sjálfa sig, sem útvalda.

Tómas Ibsen Halldórsson, 23.3.2021 kl. 15:44

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þakka þér fyrir Tómas.  Reyndar getur fólk svo sem sagt að þetta séu samsæriskenningar en ég er sannfærður um að svona sé í pottinn búið og ef fleiri en ég eru á því þá er það bara bónus, en mín skoðun er óbreytt......

Jóhann Elíasson, 23.3.2021 kl. 15:54

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Hvernig kemur Bill Gates inn í þetta er hann talinn upphafs maður að þessu "bruggi".Annars er ég að fara í koj. þarf að fá einhversstaðar uppskriftina alla.En minn guð ræður við þetta svinanari,bíð góða nótt. 

Helga Kristjánsdóttir, 23.3.2021 kl. 23:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband