"SKJÓTT SKIPAST VEÐUR Í LOFTI"............

Þegar hún var VIRK í stjórnmálunum (hún var í SAMFYLKINGUNNI og var aðstoðarmaður einhverra ráðherra þar ég man ekki hverra en minnir að hún hafi verið aðstoðarmaður tveggja, sem er stór hluti ráðherra SAMFYLKINGARINNAR) og ég man ekki betur en að þá hafi hún talað MIKIÐ fyrir nýrri stjórnarskrá.  En hún er hún í stjórn eins af stærri útgerðarfyrirtækis landsins (BRIMS) og þá er engin þörf fyrir nýja stjórnarskrá og sérstaklega ekki auðlindaákvæði.....


mbl.is Ósvífinn áróður um stjórnarskrármál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Góðan daginn Jóhann, þetta hefði einhvertíma verið kallað að haga seglum eftir vindi.

Magnús Sigurðsson, 15.7.2021 kl. 08:54

2 Smámynd: Baldvin Björgvinsson

Akkúrat.

Baldvin Björgvinsson, 15.7.2021 kl. 09:01

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Vel að orði komist Magnús........ wink

Jóhann Elíasson, 15.7.2021 kl. 09:01

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þakka þér fyrir innlitið Baldvin.  Já Magnús kann að koma orði að hlutunum....... wink

Jóhann Elíasson, 15.7.2021 kl. 09:04

5 Smámynd: Guðmundur Jónsson

Kristrún er greind, heiðarleg og málefnaleg, þó hún hafi álpast í samfylkinguna á sínum tíma er óþarfi að núa henni það um nasir til langframa.

Guðmundur Jónsson, 15.7.2021 kl. 09:12

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Guðmundur, telur þú að hún hafi séð "ljósið" við að taka sæti í stjórn Brims?????

Jóhann Elíasson, 15.7.2021 kl. 09:42

7 identicon

Hún og Ingibjörg Sólrún voru samlokur.

Orð úr munni Kristrúnar eru sem orð úr munni ISG. 

Stóra fréttin í þessu er ekki að Kristrún sé komin á beit hjá kvótagreifum, heldur að Samfylkingin er greinilega að klofna í Stjórnarskrármálinu, sem og flestum öðrum málum, enda fylking hugsjónalausra og falra tækifærissinna, já, sem haga eigin seglum eftir vindi, eins og Magnús bendir réttilega á.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 15.7.2021 kl. 10:06

8 Smámynd: Jóhann Elíasson

Góðar og tímabærar athugasemdir hjá þér Símon Pétur......

Jóhann Elíasson, 15.7.2021 kl. 10:12

9 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Væri fróðlegt ef einhver tæki nú saman hvar eru fyrrverandi stjórnmálamenn í vinnu í dag sérstaklega sem voru í "toppstöðum" eins og t.d. Árni Páll?? 1. Hvað hentar mér. 2. Hvað hentar flokknum. 3. Hvað hentar fólkinu í landinu??

Sigurður I B Guðmundsson, 15.7.2021 kl. 11:34

10 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Árni Páll Árna­son gegnir nú stöðu vara­fram­kvæmda­stjóra skrif­stofu Upp­bygg­ing­ar­sjóðs EES í Brus­sel.

Guðmundur Ásgeirsson, 15.7.2021 kl. 19:54

11 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þeir fyrrverandi Alþingismenn, sem hafa "gert það sem þeim er sagt að gera" eru ekkert á flæðiskeri staddir og það er alveg séð fyrir þeim en hinir sem eru með eitthvað múður eru í frekar slæmum málum, Sigurður og ég held að Guðmundur geti alveg staðfest þetta..............

Jóhann Elíasson, 15.7.2021 kl. 20:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband