SIGMUNDUR DAVÍÐ MÆTTI VERA MEIRA Í FJÖLMIÐLUM........

Því það verður ekki tekið af honum að hann er skemmtilegur, fluggáfaður og kemur vel fyrir sig orði.  Kata litla var ekki öfundsverð af því að mæta honum en það verður ekki af henni tekið að hún er vel gefin og þokkalega mælsk en hún kemst ekki með tærnar þar sem Sigmundur Davíð hefur hælana, enda kom það í ljós að hún reyndi að drepa málum á dreif, þegar var gengið á hana.  Það reyndi nú ekki mikið á Pál Magnússon í þessum þætti því bæði Kata litla og Sigmundur Davíð kunna sig mjög vel og mjög got "flot" í þættinum.  Ef ætti að lýsa þættinum út frá sjónarhóli íþróttanna myndi vera sagt að Sigmundur hafi unnið og Kata verið í  öðru sæti.  Fylgjendur Miðflokksins myndu segja að Sigundur Davíð hefði unnið og Kata litla verið síðust en fylgjendur VG myndu sega að Kata litla hefði orðið í öðru sæti en Sigmundur Davíð hefði verið næstsíðastur..........


mbl.is „Heilbrigðisstefna Marteins Mosdals“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Ég er sammála þér Jóhann, Sigmundur í fyrsta sæti og Kata í því síðasta. Mín skoðun er sú að Sigmundur ber höfuð og herðar yfir aðra stjórnmálaleiðtoga og til samans komast þeir ekki með tærnar þar sem Sigmundur hefur hælana.

Tómas Ibsen Halldórsson, 12.8.2021 kl. 11:15

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

En því miður þá hefur Sigmundur Davíð verið mjög lítið í fjölmiðlum.  GETUR VERIÐ AÐ ÞAРSÉ VITSVÍTANDI VERIÐ AÐ HALDA HONUM FRÁ "KJÖTKÖTLUNUM"???????

Jóhann Elíasson, 12.8.2021 kl. 11:57

3 identicon

Sæll Jóhann Stýrimaður; sem og aðrir gestir, þínir !

Jóhann og Tómas Ibsen !

Ykkur að segja; er þessi drungi og slen, hvert yfir vötnum Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar svífur:: með öllu, óskiljanlegur.

Miðflokkurinn; á sjer gnægð tækifæra til þess að Svínbeygja glæpaklíku : Katrínar / Bjarna og Sigurðar Inga niður í svaðið, þó ekki sje nema vegna ferils svika og pretta þessa hyskis, sem og attaníossa þeirra:: annað hvort, eru þau Sigmundur Davíð svona yfirmáta kurteis / nema þau sjeu fædd dauðyfli, að öllu upplagi - eða hvað ?

Meira að segja Sósíalistinn (Marx-Engels-Leníns) fylgjarinn; Gunnar Smári Egilsson er að stinga Miðflokkin af í öllum viðhorfa könnunum til þessa, og áfram, haldi sem horfir, piltar.

Ásmundarsalarmál - Samherja - Borgunar - Kína braskið o.fl.; virðast ljettvæg gagnvart dáðleysi Sigmundar Davíðs, svo ekki sje nú talað um hand- ónýta fjölmiðla landsins, flesta þeirra.

Þakkarvert þó; hversu Stundin / Útvarp Saga og Miðjan t.d., reyna þó að veita eitthvert aðhald, gagnvart óforsvaranlegri glæpaiðju Engeyinganna og Samherja packsins o.fl., en miklu meira þarf þó til, eigi eitthvað úr að rætazt.

Með beztu kveðjum af Suðurlandi; sem endranær /     

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 12.8.2021 kl. 12:10

4 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Ég held að með einbeittum vilja sé verið að halda SDG og Miðflokknum frá því að komast í stjórnarstöðu. Fólk sem berst fyrir þjóðarheill og heill hins almenna borgara er ýtt út í horn, rakkað niður og svert til að gera sem minnst úr því. Þeir sem ekki taka uppá arma sína þrýstihópa og gera vel við þá í von um að fá góðar sporslur að launum, eiga erfitt uppdráttar á þingi.

Munum hvernig tveir "fréttamenn" lögðu gildrur fyrir SDG sem varð til þess að hann neiddist til að segja af sér sem forsætisráðherra. Minnumst einnig þess hvernig hann barðist fyrir þjóðina gegn ICESAVE og hvernig aðgerðir hans sem ráðherra hjálpaði mörgum, en því miður tókst honum ekki að ljúka því verki sem hann ætlaði sér, að gera enn betur fyrir hinn almenna borgara og einkum þá sem urðu illa úti við bankahrunið. Ég hef grun um að þessir svokölluðu fréttamenn hafi ekki verið einir að verki heldur hafi andstæðingar hans í pólitík komið þar að verki.

Tómas Ibsen Halldórsson, 12.8.2021 kl. 13:42

5 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Verður spennandi að sjá hvað kemur fram á landsfundi Miðflokksins. 

Sigurður I B Guðmundsson, 12.8.2021 kl. 14:51

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já Sigurður, það verður spennandi að sjá því SDG er þekktur fyrir að koma með einhverjar "BOMBUR" sem koma ÖLLUM á óvart.  En mest er ég hissa á hvernig Gunnar Smári hefur getað kjaftað Einhverja til fylgis við sig undir merkjum hugmyndafræði sem hefur beðið skipbrot um allan heim.  Er það fólk sem lætur blekkjast það ungt að það man ekki hvernig SÓSÍALISMINN hefur farið með þau lönd þar sem hann hefur verið við lýði???????

Jóhann Elíasson, 12.8.2021 kl. 16:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband