HVAÐA "REIKNIKÚNSTIR" LIGGJA ÞARNA AÐ BAKI??????????

Ég veit ekki hvaða forsendur geta legið þarna að baki, sem dæmi er hægt að benda á það að vextir LÆKKA EKKI við það eitt að tengja Íslensku krónuna við EVRU og svona mætti lengi telja.  En svo var ég minntur á það að menn geta fengið það sem þeir vilja, með því að breyta bara forsendunum þar til þeir eru sáttir við útkomuna.  Mér finnst það athugavert ef varaformaður flokksins leggur starfsheiður sinn að veði fyrir svona "Hókus Pókus" stærðfræði..........


mbl.is Áætla að ráðstöfunartekjur heimilanna muni aukast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég hef verið undanfarna mánuði að velta því fyrir mér hvernig væri hægt að skilgreina Viðreisn, ekki gengur það alveg upp að skilgreina þetta fyrirbæri sem stjórnmálaflokk heldur á betur við að kalla þetta SÉRTRÚARSÖFNUÐ því þessi hreyfing starfar sem slíkur söfnuður því í rauninni er bara eitt mál á dagskránni hjá þeim og svo fyrir kosningar er ýmsu öðru "flaggað" sem hefur harla lítið vægi þegar upp er staðið.........

Jóhann Elíasson, 19.9.2021 kl. 19:45

2 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Ef eitthvað er of gott til að vera satt þá er það ekki satt!!!

Sigurður I B Guðmundsson, 19.9.2021 kl. 21:53

3 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Þegar fólk, einkum stjórnmálafólk, vill ná einhverju sérstöku fram þá er ýmsum bellibrögðum beitt til að ná sínum vilja fram. Viðreisn er búið að festa sig á þeim stað að reyna allar hundakúnstir til að fá fólk til að trúa því sem frá þeim kemur, jafnvel þó svo að þær leiðir sem þau boða geta verið og eru í raun þjóðinni stórhættulegar. Á hversu háum launum ætli þau séu hjá ESB?????

Tómas Ibsen Halldórsson, 19.9.2021 kl. 22:01

4 Smámynd: Grímur Kjartansson

Þessar reiknikúnstir eru náttúrlega með eindæmum
Viðreisn áætlar að ráðstöfunartekjur heimilanna aukist um 72 þúsund krónur á mánuði á komandi kjörtímabili með því að tengja krónuna við evru.


tekjur ríkissjóðs muni aukast um 125 milljarða vegna lægri vaxtakostnaðar ríkisins
Ríkið tekur sín lán erlendis og ofter en ekki eru þau í evrum

Grímur Kjartansson, 19.9.2021 kl. 22:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband