NÚNA LOKSINS ER FISKISTOFA AÐ VIÐURKENNA AÐ BROTTKAST EIGI SÉR STAÐ OG HEFUR VERIÐ FRÁ UPPHAFI

En sennilega tekur það einhvern tíma að viðurkenna að það hafi verið stundað frá upphafi.  Hvað sem því líður þá hættu netabátar að koma með "tveggja nátta fisk" til löndunar, daginn eftir að kvótakerfið var sett á.  Á frystitogurunum er það þekkt að fiskvinnsluvélarnar um borð í skipunum eru stilltar á að taka fisk, sem er frá einni stærð til annarrar.  Sá fiskur sem fellur til og er fyrir OFAN og NEÐAN þessi mörk fer aftur í sjóinn STEINDAUÐUR.  Svo er það alveg þekkt að ef skip á lítinn kvóta af einverri tegund en sú tegund veiðist einhverra hluta vegna (þvíekki er hægt að hafa 100% stjórn á þeim tegundum sem veiðast), þá fer sú tegund misskurnarlaust í sjóinn aftur.  Fræg er sagan af því, sem kunningi minn sagði mér af því að þeir vor á veiðislóð sem gaf 50% af þorski og svo 50% af ýsu, öll skipin á svæðinu voru að fá þessa blöndu en allt í einu "meldaði" eitt skipið, að það hefði fengið milli átta og tíu tonn af 100% þorski og hálftíma áður hafði hann mætt þessu skipi og hann fékk þessa fyrrnefndu "blöndu" af þorski og ýsu...


mbl.is Munur á aflatölum þegar eftirlit er með veiði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Eins og þú bendir á þá er brottkast innbyggt í kvótakerfið. Og þó svo að það hafi tíðkast fyrir kvótakerfið þá margfaldaðist það við gildistöku þess, og með tímanum varð brottkastið algjörlega óhjákvæmileg nema fjöldi útgerða færi lóðbeint á hausinn.

Magnús Sigurðsson, 8.1.2022 kl. 09:07

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Brottkast fyrir kvótakerfið fólst aðallega í að menn hentu svokölluðum "undirmálsfiski" og ef eitthvað fiskaðist af honum þá komu menn sér í burtu af "bleyðunni"..........

Jóhann Elíasson, 8.1.2022 kl. 09:27

3 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Einmitt, rétt að halda því til haga.

Magnús Sigurðsson, 8.1.2022 kl. 09:50

4 Smámynd: Rúnar Már Bragason

Meðan laun sjómanna eru tengd við aflann þá verður brottkast til staðar. Það vilja allir sem mest fyrir túrinn og þá viltu ekki smáfiskinn né stóra fiskinn.

Er enginn aðdáandi kvótakerfisins en skil samt ekki af hverju uppgjör á magni smáfisks og annarra tegunda sem fylgja með er ekki gert eftir á og unnið út frá því. Væri mun vísindalegra en núverandi aðferð. Þannig geturðu haft kvóta en refsar ekki ef aflinn er of mikið af tegund sem lítill kvóti er eftir af.

Hin tölfræðilega nálgun Hafró er í raun á sama grunni og tölfræðileg nálgun við Covid-19 - einstengisleg og hafnar að taka inn ýmsar breytur sem hafa áhrif.

Rúnar Már Bragason, 9.1.2022 kl. 16:01

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Rúnar Már, ég er ekki á því að laun sjómanna spili stóra rullu í vandamálinu, heldur kvótakerfið sjálft.  Það hefur oft verið boðið upp á það að skiptakerfið verði tekið af og sjómenn verði bara á sanngjörnu tímakaupi en því hefur ávalt verið hafnað af hálfu útgerðarinnar og hefur aldrei mátt ræða það.  HVER SKYLDI ÁSTÆÐAN VERA?????????

Jóhann Elíasson, 9.1.2022 kl. 17:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband