FORSÆTISRÁÐHERRA KEMUR TIL MEÐ AÐ HAFA NÆGT EFNI Í GLÆPASAGNABÓKAFLOKK UPP Á 20 BINDI....

Það er kannski ekki seinna að vænna fyrir hana að fara að leggja drög að starfslokum sínum, kannski er hún farin að sjá einhverja bresti í stjórnarsamstarfinu og vill hafa vaðið fyrir neðan sig, enda getur enginn, með góðri samvisku, brigslað henni um að skorta vit.  Og ekki ætti að verða skortur á "raunverulegum" efnivið en reikna má með að eitthvað af þessu efni sé bundið TRÚNAÐI en hún ætti ekki að vera í neinum vandræðum með að komast framhjá því, hingað til hafa lög og reglur ekki verið að þvælast fyrir henni og ættu ekki að vera nein fyrirstaða seinna meir heldur...........


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Sýnir enn og aftur hversu lítil vinna og ábyrgd er á bak vid

thetta embaetti. Gód laun fyrir glaepasogur.  

Sigurður Kristján Hjaltested, 15.7.2022 kl. 10:51

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já og svo fær hún örugglega þessa "undanþágu" til þess að sinna þessum glæpasagnaskrifum sínum og ég þori að veðja að hún verður um leið á 'OSKERTUM FORSÆTISRÁÐHERRALAUNUM Á MEÐAN HÚN "VINNUR" AÐ ÞESSARI GLÆPASÖGU SINNI.................

Jóhann Elíasson, 15.7.2022 kl. 11:19

3 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Svo var það kvennamaðurinn sem ætlar að skrifa um íslenskar dömur. Það kemur út í sex bindum og kemur fyrsta dömubindið út fyrir jól!!

Sigurður I B Guðmundsson, 15.7.2022 kl. 12:17

4 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Og þegar þessi sami kvennamaður var nýgiftur og var að labba niður Laugaveginn með sinni heittelskuðu mættu þau svaka skvísu sem heilsaði honum. Kona hans var nú ekki hrifinn af þessu og spurði mann sinn hver þetta var? Æ, vertu ekki að þessu svaraði maðurinn konu sinni og sagði að það kæmi til að vera nógu anskoti erfitt fyrir sig að útskýra fyrir  henni hver þú ert!!

Sigurður I B Guðmundsson, 15.7.2022 kl. 12:29

5 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Svo þessi: Hvað gera hestamenn sem detta af baki? Þeir fara aftur á bak!!

Sigurður I B Guðmundsson, 15.7.2022 kl. 12:38

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já hún hefur sko ekki verið "af baki dottin" þessi dama Sigurður. wink  Svo  var annað sem mér datt í hug varðandi Forsætisráðherrann okkar, sem ætlar í glæpasöguskrif, ætli hún fá listamannalaun eða jafnvel heiðurslistamannalaun???????? undecided

Jóhann Elíasson, 15.7.2022 kl. 13:11

7 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Eiga þessi fyrirhuguðu glæpasagnaskrif ekki bara að verða sjálfsævisaga undir rós?

Magnús Sigurðsson, 15.7.2022 kl. 14:22

8 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það skyldi þó ekki vera, Magnús???????? cool wink

Jóhann Elíasson, 15.7.2022 kl. 14:58

9 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Hún er að fara að skrifa glæpasögu ásamt Ragnari Jónssyni. Hef meiri trú á að þessi glæpasaga verði miklu áhrifameiri ef hún fengi Steingrím J. sem heimildarmann og meðskrifara!!

Sigurður I B Guðmundsson, 15.7.2022 kl. 17:34

10 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já í það  minnsta yrði hún byggð á raunverulegum atburðum..........

Jóhann Elíasson, 15.7.2022 kl. 21:37

11 identicon

Sæll Jóhann.

Þetta mál kann að vera annan veg vaxið en virðist við fyrstu sýn.

Boris Johnson fékk að fjúka vegna herskárrar stefnu sinnar í Úkraínu og
ekki ólíklegt að farið sé að hitna undir framkvæmdastjóra NATÓ, Jens Stoltenberg
en hann hefur virst fylgja sömu stefnu.

Það getur því verið hentugt ef til tíðinda dregur á þeim vattvangi að losa um bolta og skrúfur
á stólum og borðum í forsætisráðuneytinu enda hreint ekki ólíklegt að
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra sé fyrsta val í stöðu framkvæmdastjóra NATÓ.

En ráðherra fylgja nú sem áður velfarnaðaróskir hver sem starfsvettvangur er eða verður.

Helgi Hálfdanarson, þýðandi taldi mönnum vorkunnarlaust að sinna fullu starfi hvað sem
ritstörfum liði og styrkjalaust með öllu enda hafnaði hann silfruðum hófahreini hér um árið!

Sjálfur sannaði hann þessa kenningu best sjálfur en nærtækast er svo að nefna þá ritstjóra Morgunblaðsins,
Matthías Jóhannessen og Davíð Oddsson.

Þrekvirki þeirra afdalabænda, Jóns Trausta sem fyrstan skal til sögu nefna enn í fersku minni
og hulið flestum þegar hvern doðrantinn rak annan hvar hann fann tíma til þeirra skrifta
eða hvort maðurinn svaf yfirleitt.

Húsari. (IP-tala skráð) 18.7.2022 kl. 00:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband