HVENÆR Á EIGINLEGA AÐ FARA AÐ LEIÐRÉTTA ÞESSA VITLEYSU, SEM KVÓTAKERIÐ ER????

Kvótakerfið hefur verið tóm "steypa" alveg frá upphafi og með tímanum hefur verið bætt í þvæluna frekar en hitt og ber þá sérstaklega að  nefna að leift var að VEÐSETJA kvóta og svo kom stóra "bomban" en þá kom framsalsheimildin.  Ég hef leitað í nokkrum lagabálkum og ÉG HEF HVERGI FUNDIÐ AÐ AÐ SÉ NOKKUR HEIMILD TIL AÐ "SELJA" KVÓTA SEM HEFUR VERIÐ ÚTHLUTAÐ.  Enda sér það hver maður að menn geta ekki selt það sem þeir eiga ekki og það er náttúrlega með öllu fáránlegt að það megi "veðsetja" eitthvað sem menn eiga ekki.  KVÓTI ER EKKI ÞINGLÝST EIGN NEINS AÐILA.  Mér er það STÓRLEGA TIL EFS að ég kæmist upp með að VEÐSETJA leiguíbúðina sem ég er í núna og hvað þá að SELJA hana.  Samkvæmt grein sem prófessor Þórólfur Matthíasson skrifaði í Fréttablaðið þann 16.júlí síðastliðinn, var varanlegt þorskígildiskíló selt á kr. 2.556 frá Vísi í Grindavík til Síldarvinnslunnar á Neskaupsstað FYRIR "SAMEIGINLEGA EIGN ÞJÓÐARINNAR"...............


mbl.is Að óbreyttu með 14% af aflaheimildum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

 Þetta sýnir hve SFS áður LÍÚ eru stekt afl í islensku þjóðlífi og hafa svokallaðan fjórflokk í rassvasanum. Hverning á það að vera hægt að selja það sem þú færð úthlutað til eins árs frá hinu opinbera þannig að kaupandinn eignast þannig óveiddan fisk í sjónum varanlega? Þetta er eins vitlaust og hægt er og af hverju er þetta látið viðgangast?

Sigurður I B Guðmundsson, 18.7.2022 kl. 10:36

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Sigurður, það sem ég gat lesið út úr lögunum var að framsalsheimildin væri bundin við það að ef útgerð treysti sér ekki til að veiða einhverja vissa tegund væri heimilt að láta þann kvóta til annars aðila GEGN sama verðmæti í annarri tegund.  Svo gat  ég ekki betur séð að ef útgerð er seld þá ber viðkomandi að SKILA INN úthlutuðum kvóta, en það virðist vera að útgerðin hafi heimild til að TÚLKA lögin eins og þeim hentar hverju sinni og enginn segir neitt....

Jóhann Elíasson, 18.7.2022 kl. 10:53

3 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Ég vil fá að vita er það löglegt að selja það sem maður fær úthlutað frá "ríkinu" til eins árs? Þetta að fiskurinn í sjónum sé í eigu þjóðarinn er bara sorglegur brandari.

Sigurður I B Guðmundsson, 18.7.2022 kl. 11:26

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Framkvæmdin er ekki í samræmi við lögin finnst mér, Sigurður.....

Jóhann Elíasson, 18.7.2022 kl. 11:34

5 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

 Ætlar virkilega enginn að taka upp hanskann fyrir kvótagreifana? 

Sigurður I B Guðmundsson, 18.7.2022 kl. 17:48

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Málstaður þeirra er fremur "slakur" og þeir vita það.  En ef maður skoðar ársreikning nokkurra fyrirtækja í sjávarútvegi fyrir síðustu ár á stendur upp úr að hagnaður er í algjöru  lágmarki og þegar maður horfir á síðustu "sölur" þá kemur í ljós að söluverðið er aðallega fólgið í KVÓTANUM, sem eins og áður hefur komið fram er EKKI EIGN viðkomandi útgerðar OG MÁ SEGJA AÐ ÞAR SÉ UM ÞÝFI AÐ RÆÐA........

Jóhann Elíasson, 18.7.2022 kl. 22:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband