ÝMISLEGT BENDIR TIL ÞESS AÐ ÞETTA SÉ EKKI ALVEG ÚT Í HÖTT!!!!!!!

Í það minnst er ekki margt, sem Biden hefur gert og "komið í gegn" sem beinlínis, getur talist vera SÉRSTAKLEGA til að VERNDA hagsmuni Bandaríkjanna eða til að auka "hróður" landsins út á við og þá hlýtur ræðan hans í gærkvöldi  að vekja upp ýmsar spurningar um hann og starfsaðferðir hans.......


mbl.is Sakar forsetann um að vera óvin ríkisins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Ræða Bidens er öll í pólitískum tilgangi og minnir á áróður stríðstíma. Pólitískar ofsóknir á hendur Donalds Trump eru sérstaklega tímasettar á þessa tíma rétt fyrir þingkosningarnar í nóvember í ár. Nú er búið að tromma upp þá stemmningu að sem flestir demókratar mæti á kjörstað, hræðsluáróðurinn útaf aukinni hörku í baráttu með og á móti fóstureyðingum og miklar vinsældir Donalds Trump í könnunum sem sýna að hann myndi sigra Joe Biden ef kosið væri nú.

Fulltrúardeildarþingmaðurinn Liz Cheney gaf það út að hún myndi gera allt til að stöðva Trump, þó var henni hafnað af repúblikönum í Wyoming. Móðursýki demókrata er algjör einsog hún er í Evrópu einnig, því miður.

Skjölin á heimili Trumps eru talin gera málstað hans vafasamari. Það að Sara Palin, mikill Trumpisti og dyggur, komst ekki að í Alaska er til marks um að hatursáróðurinn gegn Trump hefur virkað á marga kjósendur, sem trúa áróðri valdafíkinnar vinstristéttarinnar.

Því miður lifum við í þannig heimi að fjölmiðlarnir stjórna skoðunum fjöldans og skjölin á heimili Trumps hafa ekki bætt hans stöðu, og enn síður það hik sem hefur komið á hann eftir þetta, sem er mjög ólíkt honum og framkomu hans hingað til. Hinn sigurvissi Trump sem aldrei hefur hikað hefur frekar halað inn atkvæði.

Ingólfur Sigurðsson, 4.9.2022 kl. 13:12

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég get sko alveg tekið undir með þér Ingólfur.  Á meðan "VINSTRI HJÖRÐIN" stjórnar algjörlega fjölmiðlunum og meginþorri almennings lætur þá algjörlega stjórna sér er ekki von á að neitt lagist.......

Jóhann Elíasson, 4.9.2022 kl. 13:34

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Donald Trömp hélt 2 tíma ræðu í Pennsilvaníu í gærkvöldi og sagði Fíb menn sjúka og heilabilaða.Þeir skyldu allt eftir í drasli eftir að hafa gramsað í herbergi sonar Trumps hinum 16 ára Barron Trump.  Með D.T. voru öldungadeildar þingmenn m.a. Doug Mestriano ofl.

Helga Kristjánsdóttir, 5.9.2022 kl. 01:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband