EKKI ER ALLT SEM SÝNIST - HVAÐ ER "RAUNVERULEGA" Í GANGI??????

 

Það vantar ekkert upp á það, að eins og þessi sameiningaráform Kviku banka og Íslandsbanka eru kynnt fyrir okkur sauðsvörtum almúganum er engu líkara en við séum að fara að upplifa "HIMNARÍKI Á JÖRÐ".  En kannski kemur ýmislegt annað í ljós ef aðeins er skoðað undir yfirborðið.  Einu rökin, sem ég hef heyrt, sem mæla með sameiningu ERU SVOKÖLLUÐ SAMLEGÐARÁHRIF og auðvitað eru  þau til  staðar, rekstrarkostnaður LÆKKAR en þá kemur það á móti að bankastofnum FÆKKAR og þar af leiðandi MINNKAR samkeppni og yfirleitt leiðir það af sér VERÐHÆKKANIR.  Kunningi minn Ómar Gíslason fór á heimsíður bæði Kviku banka og Íslandsbanka og skoðaði hluta af gjaldskrá bankanna, síðan setti hann báðar gjaldskrárnar saman í excel skjal.  Hann gaf mér leyfi til að birta þetta á blogginu og hér fyrir neðan er niðurstaðan:

Samanburður á gjaldskrám

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Mynd: Samanburður á gjaldskrá Kviku banka og Íslandsbanka.

"ATH. KLIKKIÐ Á MYNDINA TIL AР STÆKKA HANA"

Ef af sameiningu bankanna verður, hvor gjaldskráin ætli sé líklegri til að veri í gangi í ljósi þess að bönkum á markaði fækkar????????


mbl.is Íslandsbanki svarar Kviku játandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Getur verið að Kvika banki sé komin í rekstrarvanda? Fróðlegt væri að fá að vita hvð er þarna raunverulega á seyði.

Er það ekki rétt að ein af lexium hrunsins 2008; var sú að varasamt væri að blanda saman fjárfestingarbanka og banka fyrir almenning og smærri fjárfesta?

Bragi Sigurðsson (IP-tala skráð) 11.2.2023 kl. 18:19

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þetta er alveg rétt hjá þér Bragi með fjárfestingabankana og almenna bankastarfsemi, en einhverra hluta vegna hefur ekki verið vilji fyrir því að skipta bankastarfseminni upp hér á landi.  Ég hef heyrt af því líka að Kvika banki standi ekki of vel ég hef bara ekki nógu og áreiðanlegar upplýsingar til að geta tjáð mig um það.  En það er unnið mjög hart að því að selja almenningi hugmyndina.......

Jóhann Elíasson, 11.2.2023 kl. 19:55

3 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Þetta er ekkert annað en þjófnaður eina ferðina enn og með blessun BB.

Sýndi sig við söluna á hlut úr Íslandsbanka seinast. Hrunverjarniir allir

mættir aftur og ennþá með skítinn uppá bak frá því seinast en fá að

halda áfram eins og ekkert hafi skeð.

Ef af þessu verður er Ísland, stórasta (spilltasta) land í heimi.

Sigurður Kristján Hjaltested, 11.2.2023 kl. 21:41

4 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Svo er við þetta að bæta alveg mögnuð grein eftir

hann Ragnar önundarson fyrrverandi bankastjóra íá mbl í dag og

heitir... Hugsum skýrt um bankamál.

https://www.mbl.is/mogginn/bladid/grein/1829297/?t=652627542&_t=1676151703.1507208

Sigurður Kristján Hjaltested, 11.2.2023 kl. 21:45

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Hann Ragnar Önundarson er með þeim bestu sem tjá sig um bankamál og yfirleitt um þjóðfélagsmál hér á landi og gerir það á sérstaklega góðan hátt og þannig að eftir er tekið og allt sem hann segir er satt og rétt og full ástæða til að hugleiða vel það sem hann segir og ætti að fara eftir því sem hann segir.  Kannski er líka full ástæða til að hugleiða það að þeir einu sem koma með einhverja gagnrýni á það sem er í gangi eru eftirlaunaþegar og aðrir sem eiga ekki lengur á hættu að verða reknir úr vinnu.  Segir þetta ekki ýmislegt um það þjóðfélag sem við búum í????????

Þá vil ég minaa á viðtal við Ragnar Árnason hagfræðiprófessor "emirítus", þetta viðtal er á Útvarpi Sögu og er hægt að nálgast á heimasíðu Útvarps Sögu.  Þetta viðtal er með því allra besta sem ég hef heyrt.  Í þessu viðtali kemur hann inn á margt og útskýrir mjög skemmtilega þá hluti sem hann fjallar um..... 

Jóhann Elíasson, 12.2.2023 kl. 05:10

6 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Það sem hentar hagsmunaöflum verður gert því Íslandi er stjórnað af hagsmunaöflum!

Sigurður I B Guðmundsson, 12.2.2023 kl. 11:15

7 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Atti að vera sérhagsmunaöflum.

Sigurður I B Guðmundsson, 12.2.2023 kl. 11:24

8 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það er heila máli, Sigurður.  Og ef við tökum bara fyrir þessa "fyrirhuguðu" bankasameiningu, þá liggur það fyrir að það eina sem hefur verið talað um að sé hagurinn sé STÆRÐARHAGKVÆMNI.  En fyrir hverja er sú hagkvæmni? Sú hagkvæmni er fyrir eigendur ALMENNINGUR HEFUR ALDREI NOTIÐ GÓÐS AF "HAGRÆÐINGU" INNAN FJÁRMÁLAGEIRANS.  ENDA SÝNA AFKOMUTÖLUR  BANKA OG FJÁRMÁLASTOFNANA ÞAÐ MEÐ MJÖG SKÝRUM HÆTTI............

Jóhann Elíasson, 12.2.2023 kl. 12:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband