OG ÆTLA STJÓRNVÖLD BARA AÐ SITJA HJÁ OG HALDA ÁFRAM AÐ GERA EKKI NEITT???

Þessi staða sem komin er upp hér í þjóðfélaginu þessa dagana er með öllu óviðunandi.  Og ekki er hægt að skrif þessa stöðu eingöngu á aðila vinnumarkaðirins, aðilar vinnumarkaðarins bera enga ábyrgð á verðbólgunni, spillingu, stjórnleysi í innflytjendamálum, óreiðu í loftslagsmálum, aðgerðaleysi vegna fátæktar í landinu, skorti á aðgerðum til að sporna gegn húsaleiguokri, útþenslu opinbera geirans og fleira og fleira.  Nú verður ríkisstjórnin að setja LÖG Á VERKFALLIÐ OG VERKBANNIÐ.  En það verður ENGIN sátt um það að eingöngu verði sett lög heldur verða að koma til einhverjar aðgerðir. En skulum við aðeins fara yfir hvað stjórnvöld GETA gert en þar kemur til að nú er tækifæri fyrir stjórnvöld til að leiðrétta misræmi í skattkerinu sem hefur verið að eiga sér stað síðan í mars 1988 og hefur síðan alltaf verið að aukast.  Í mars árið 1988 var neysluvísitalan 100,0 stig og persónuafslátturinn 15.524 krónur en í mars 2022 var neysluvísitalan 528,8 stig og persónuafslátturinn 53.916 krónur en ef persónuafslátturinn hefði fylgt neysluvísitölunni ætti hann að vera 82.090,9 eða um 82.091 krónur ( til hagræðis við útreikninga þá HÆKKAÐI ég persónuafsláttinn um einn eyri og vegna þess að ég er samviskulaus finnst mér ekkert að því).  Með því að HÆKKA persónuafsláttinn upp í 82.091 krónu og LÆKKA lægsta skattþrepið niður í 19,09%, yrðu laun að 400.000 krónum SKATTFRJÁLS.  En þessar aðgerðir skapa eitt vandamál, meðalútsvar er í dag 14,67% þannig að ríkissjóður myndi aðeins fá 4,42% af skattheimtunni í sinn hlut.  Ekki veit ég hvernig á að bæta ríkissjóði þetta tekjutap en til dæmis væri hægt að breyta skattkerfinu með einhverjum hætti þá væri hægt að láta þessa lágu skattprósentu gilda yfir laun að 500.000 krónu en svo væri líka hægt að segja að verið væri að leiðrétta áratuga misræmi.........


mbl.is Boða mótmælagöngu vegna verkbanns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Það væri hægt að bæta ríkissjóði þetta tekjutap með ýmsum hætti.

Svo sem að hækka bankaskatt, veiðigjöld og fjármagnstekjuskatt yfir frítekjumarki.

Einnig hefur verið nefndur sá möguleiki að skattleggja lífeyrisiðgjöld við inngreiðslu í stað úgreiðslu.

Guðmundur Ásgeirsson, 22.2.2023 kl. 16:50

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það er sko alveg rétt hjá þér Guðmundur og alveg rétt að minnast á það að ríkissjóður væri ekkert á "horriminni" þótt kjör þeirra lægst launuðu yrðu lagfærð.....

Jóhann Elíasson, 22.2.2023 kl. 17:41

3 Smámynd: Grímur Kjartansson

Það vill til að ég hef horft á Alþingi í vikunni
Aðalmálið á mánudag var að birta skyldi 5 ára gamla minnispunkta fyrrvernadi rískisendurskoðanda. Því hugsanlega væru þeir ekki í samræmi við lokaskýrslu Ríkisendurskoðunar
Í dag var það þingsályktunartillaga um hungursneyð í Úkraínu fyrir 90 árum síðan

og þessu fólki erum við að greiða laun

Grímur Kjartansson, 22.2.2023 kl. 20:44

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já Grímur, þarna komst þú inn á skemmtilegan hlut, stundu og oftast finnst manni að þingið sé ekki að sinna þörfum þjóðarinnar að neinu leiti heldur að bruðla með tímann í einhvern fjandans óþarfa sem skiptir engu einasta máli fyrir einn né neinn......... undecided

Jóhann Elíasson, 23.2.2023 kl. 03:09

5 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Stjórnin getur ekki annað en að grípa inn í þessa ljótu vinnudeilu en gerir það ekki fyrr en allt sé að fara fjandans til svo þau fái hrós fyrir. 

Sigurður I B Guðmundsson, 23.2.2023 kl. 10:12

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Sigurður eins og ég segi í blogginu þá er staðan þannig að það dugir ekki til að setja "bara "lög" á verkfallið og verkbannið það VERÐUR að koma eitthvað fleira til.  Fyrir það fyrsta þá er deilan komin á svo alvarlegt stig og svo mikil "kergja" komin í málið og svo er VG í stjórn og það sem meira er ÞEIR ERU MEÐ MÁLAFLOKKINN Á SINNI KÖNNU.  Til þess að missa ekki trúverðugleika sinn algjörlega sem vinstri flokkur VERÐA ÞEIR BARA AÐ GERA EITTHVAÐ FYRIR ÞÁ LÆGST LAUNUÐU.  SEGIR EKKI EINHVERS STAÐAR "SÁ Á KVÖLINA SEM Á VÖLINA"....

Jóhann Elíasson, 23.2.2023 kl. 13:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband