ALGJÖRLEGA ÓÞARFI AÐ GERA ÞENNAN LEIK SVONA ROSALEGA SPENNANDI

Þessi leikur var einhver sá ótrúlegasti, held ég sem ég hef nokkurn tíma orðið vitni að.Mínir menn voru með 3:0 forystu og missa þá forystu niður í jafntefli á lokamínútu uppbótartíma, svei mér þá ég var alveg gáttaður á þessum leik minna mann og var að mestu búinn að sætta mig við þessa niðurlægingu en þá reddaði Diego Jota leiknum fyrir mína enn á síðustu sekúndum uppbótartímans, mikið óskaplega létti mér og um leið þakkaði ég Guði fyrir það að ég er með nokkuð sterkt hjarta.  Það sem var best við þennan leik var að góður vinur minn var á honum og ég veit að hann hefur átt góðan dag og náttúrulega það sem skipti öllu var að Liverpool vann leikinn þótt það stæði tæpt en eins og sagt er: "SIGUR ER JÚ ALLTAF SIGUR"...........


mbl.is Ótrúleg dramatík á Anfield
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband