Einstefna Hannesar Hólmsteins!

Var að lesa grein eftir Hannes Hólmstein Gissurarson, í Fréttablaðinu í gær (vegna anna hafði ég ekki “tíma” til að lesa greinina fyrr, sem hefði nú ekki verið stór skaði) nema mér finnst alveg nauðsynlegt að leiðrétta nokkrar staðreyndavillur sem hann kastar fram í þessari grein sinni, en honum virðist vera nokkuð tamt að “hagræða” staðreyndum, eða jafnvel sleppa þeim alveg, til þess að málefni “passi” betur að þeim “frjálshyggjuhugmyndum” sem hann aðhyllist og er mikið að predika.Því miður , þá fellur Hannes Hólmsteinn í þann “drullupytt”, sem ég hélt að gæti nú ekki hent jafn vel upplýstan og mikinn fræðimann og hann er, að hann blanda saman tveimur málum og gerir úr  þeim eitt mál og til að bæta gráu ofan á svart, með því að nota gamla og góða “frasa” til að undirstrika mál sitt, en þar fellur hann á eigin bragði, því þetta gerir greinina ótrúverðuga og illa unna.  Fyrsta málið er einkasala ríkisins á áfengi og hitt er hvar eigi að vera heimilt að selja áfengi, þessum tveimur málum blanda Hannes Hólmsteinn Gissurarson og skósveinar hans saman og eins og fyrr segir setja saman í eitt.En nú ætla ég að taka þessi tvö fyrrnefndu mál fyrir og reyna að koma “mínum” sjónarmiðum á framfæri.·         Einkaleyfi á sölu á þessum vörum er annað mál og það er ekki rétt að blanda þessu tvennu saman.  Ég er alveg sammála þér með það að "ríkið" á ekki að vera með einkaleyfi á að selja þetta en það verður að vera einhver regla á hvað varðar sölu á þessari vöru.  Ekki dettur mér í hug að gera þér upp eitthvað ofstæki í þessum málum Hannes en við verðum, vegna stærðar/smæðar markaðarins, að taka tillit til þess þegar ákveðið er með sölu á ákveðnum vörum, ekki bara áfengis.  Hannes segir í grein sinni “Úrtölumennirnir vilja vegna áfengisbölsins banna sölu bjórs og léttvíns í venjulegum búðum. Ég spyr: Hvers vegna viljið þið þá leyfa hana í ríkisbúðunum, sem hefur snarfjölgað síðustu ár, um leið og úrval hefur þar batnað?   Samkvæmt þessum skrifum get ég ekki betur séð en að aðgengi að léttvíni og bjór sé bara gott og er alltaf að batna og úrvalið líka.·         Mér finnst allavega tíma Alþingis betur varið í að ræða önnur meira aðkallandi mál en þetta (í fimmta skipti) en það er greinilegt að "stuttbuxnadeild" íhaldsins og frjálshyggjupostularnir ætla sér að hanga á málinu og flytja um það frumvarp á Alþingi þar til þingmenn gefast upp á þessu og bara samþykkja það til að losna við enn eitt frumvarpið á næsta þingi.  En eitt hafa Sigurður Kári og félagar ekki leitt hugann að eða ekki viljað að kæmi fram.  Það er að eins og þeir benda á hægt er að versla léttvín og bjór í matvöruverslunum í Frakklandi og Ítalíu (ég tek þetta eingöngu sem dæmi) jú þetta er alveg rétt en í þessum löndum eru milljónir og jafnvel tugmilljónir manna, þetta þíðir að markaðurinn fyrir þessar vörur er stór og um leið þá gefur það auga leið að markaðurinn fyrir sterkt áfengi er líka stór, þarna skilur á milli Íslands og þessara landa, á Íslandi eru eingöngu rúmlega 300 þúsund manns og það er bara ósköp einfalt, Íslendingar hafa ekki efni á að reka tvöfalt sölu- og dreifingarkerfi fyrir áfengi, þannig að ef sala á léttvíni og bjór verður leifður í matvöruverslunum verður ekki rekstrargrundvöllur fyrir sölu á sterku áfengi á Íslandi og þá hverfum við aftur til bannáranna, kannski er það það sem "stuttbuxnadeildin"vill?   Þó að rannsóknir, að það sé beinlínis hollt að drekka hæfilega mikið af rauðvíni, því það dragi úr hjartasjúkdómum, þá er að mínum dómi, ekki komin ástæða fyrir því að fara að selja léttvín og bjór í matvöruverslunum.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Örn Einarsson

Sæll Jóhann.

 Áfengi nota ég ekki og er slétt sama hvar það er selt. Sá sem ætlar að drekka, verður sér úti um áfengi hvað sem það kostar, sagan segir okkur það.

 Er ekki verið að selja áfengi í matvöruverslunum úti á landi?

En ég óttast mest að stóru skrýmslin Baugur og kaupás fari að hirða arðinn af áfegnissölunni og stjórna markaðnum.

Er ekki komið nóg af slíku. Hvar í heiminum þekkist það td að ráðandi öfl á matvörumarkaði, séu líka ráðandi í fjölmiðlum og eiga líka meirihlutann í öryggisþjónustu og neyðarlínunni líka.

Þetta samfélag er að verða súrara en pungarnir á þorrablótunum.

Ansi mikil og góð grein hjá þér Jóhann.

Einar Örn Einarsson, 3.11.2007 kl. 14:18

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þakka þér fyrir Einar.   Hvenær komstu í land?  Margt mætti hér betur fara og ekki hjálpar það til þegar þingmenn eru farnir að senda sömu frumvörpin ár eftir ár án umhugsunar.  Það virðist vanta nokkuð mikið "gagnrýna" hugsun hér,  því miður.  Ef léttvín- og bjórsala yrðu einkavædd sé ég ekki fyrir mér að einkaaðilar myndu styðja við bakið á forvarnarstarfi.  Því markmið einkarekstrar er, yfirleitt, að hámarka hagnað.

Jóhann Elíasson, 3.11.2007 kl. 16:19

3 Smámynd: Einar Örn Einarsson

Kom í land á miðvikudag

Fer aftur á mánudag.

Það er einmitt lóðið, markmið einka og ríkisrekstrar eru ekki hin sömu

Einar Örn Einarsson, 3.11.2007 kl. 16:59

4 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Góðan daginn Jóhann, það er með ólíkindum hvað kaupmenn og heildsalar innan gæsalappa ætla að verða gráðugir hafa þeir ekki nóg núna eins og er. Ég er sammála Einari Erni með það að aðgengi að áfengi og tóbak skiptir litlu máli og svo er það rétt hjá honum hvað varðar stjórnarsukkið hér á landi. kær kveðja úr Eyjum. 

Helgi Þór Gunnarsson, 3.11.2007 kl. 17:13

5 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Góður pistill hjá þér Jóhann, ég er sammála þér að það á ekki að selja bjór og vin í matvörubúðum.      

kær kveðja                            

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 3.11.2007 kl. 22:12

6 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Góð hugleiðing.

Hannes er alveg ótrúlegur þegar hann tekur til við sín meintu frjálshyggjuskrif, á stundum.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 4.11.2007 kl. 00:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband