Gefum blóð, allir sem geta!

Venjulegur maður getur gefið blóð á 3 mánaða fresti, Það er ekki mikil fórn að koma við í Blóðbankanum og láta "tappa" af sér einni "einingu, fyrir utan það að í Blóðbankanum er stórkostlegt starfsfólk, kaffistofan er sú besta á landinu og svo er það bara "þrælgott" að þynna blóðið aðeins og svo ekki sé talað um að einhver einstaklingur nýtur góðs af því að maður kom við í Blóðbankanum, þegar maður var að reka einhver erindi á Laugaveginum en Blóðbankinn er á Snorrabraut 60 (í sama húsi og skátabúðin var)

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Ragnarsson

Sæll"félagi"Jóhann.Ég tek undir með þér.Já manni fannst eins og þú segir bara "þrælgott" að þynna blóðið aðeins hér í"den"en náttúrlega á allt annan hátt.En það var ÞÁ.En að öllum fíflaskap slepptum þá er þetta nauðsynlegt.Kært kvaddur

Ólafur Ragnarsson, 13.2.2008 kl. 04:02

2 Smámynd: Atli Hermannsson.

Sæll Jóhann. Ég fór í fyrsta skipti á nýja staðinn um daginn og þar er mikil breyting fyrir starfsfólkið. Þá er betra að leggja þar, stærra bílaplan og þægilegri aðkoma. Þetta með kaffistofuna, þá er hún virkilega rúmgóð, en "karakterinn" af gamla staðnum varð eftir... en hann kemur vonandi.

Atli Hermannsson., 15.2.2008 kl. 08:32

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það er alveg rétt að "karakterinn" vantar kannski voru það þrengslin sem sköpuðu "karakterinn", verður ekki annar "karakter" á þessum stað? og miðað við þær viðtökur sem ég hef fengið á nýja staðnum, í þessi tvö skipti sem ég hef farið þarna, kvíði ég ekki þeim "karakter" sem þarna á eftir að verða.

Jóhann Elíasson, 16.2.2008 kl. 13:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband