Árlega VÆLIÐ byrjað.

Árni Finnsson ætti  nú heldur að einbeita sér að því "vernda" Íslenska náttúru en að ganga erinda hvalaskoðunarfólks og Greenpeace.  Er það gott til afspurnar að þessi forvígismaður náttúruverndar skuli alltaf gelta þegar honum er sigað?
mbl.is Hrefnuveiðar tilgangslausar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Blessaður Sammála og hvað um að vernda Íslenska lifnaðarhætti og hefðir

Jón Aðalsteinn Jónsson, 19.5.2008 kl. 17:06

2 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Eg er þessu sammála hjá þér Jóhann/en hvernig er með Hvalinn það talar engin um það hvort við höldum áfram Hvalveiðum/hefur ekki komið ut úr þessu söludæmi á Hvalkjötinu/eða er þetta mál alveg tabú???Kveðja Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 19.5.2008 kl. 17:20

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Nei Halli ég veit ekki til að það hafi nokkuð gerst í hvalveiðimálunum eða sölu á þessu hvalkjöti enda hefur það víst ekki verið mikið reynt.  Annar finnst mér hugmyndin hjá bloggvini mínum honum Hafsteini Viðari Ásgeirssyni best en hann er á því að það eigi að ráða Japani eða Kóreubúa til þess að veiða hvalina, þeir yrðu verktakar, þá væru sölu- og markaðsmálin alveg á þeirra könnu.

Jóhann Elíasson, 19.5.2008 kl. 17:54

4 Smámynd: Rúnar Geir Þorsteinsson

Já það er undarlegt vælið í honum Árna. Helstu rökin eru að þetta borgi sig ekki fjárhagslega, þetta bitni á ferðamennsku og að við fáum að kenna á því erlendis.

Það sannaðist í fyrra að þetta bitnar ekki á ferðamennsku, enda aldrei fleiri sem komið hafa í hvalaskoðun. Einu skiptin sem við fáum lítillega að kenna á því, er þegar Greenpeace og þessháttar hryðjuverkasamtök standa fyrir mótmælum. Og ef Árni heldur að þetta borgi sig ekki fjárhagslega þá þarf hann ekki að hafa af því áhyggjur, því menn standa ekki lengi í útgerð sem ber sig ekki. Reyndar held ég að allur hvalurinn hafi selst í fyrra.

 Annað hvort finnst honum hvalirnir vera svona sætir, eða að hann er að reyna að réttlæta að hann sé formaður náttúruverndarsamtaka. Hvort tveggja er mér ekki að skapi.

Rúnar Geir Þorsteinsson, 19.5.2008 kl. 18:14

5 Smámynd: Ívar Jón Arnarson

Allt hrefnukjöt sem var á boðstólum í verslunum og veitingahúsum í fyrra seldist upp.  Þannig að rök umhverfissinna um markaðsmál standa ekki.

Ívar Jón Arnarson, 19.5.2008 kl. 19:14

6 Smámynd: Hallgrímur Guðmundsson

Fangelsa þetta frethænsni og það strax áður en hann gerir meira af sér..

Hallgrímur Guðmundsson, 19.5.2008 kl. 21:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband