Föstudagsgrín

Bimba vaknaði um miðja nótt og áttaði sig á því að eiginmaðurinn var ekki í rúminu. Hún smeygði sér í náttkjólinn og fór niður. Sat þá ekki maðurinn við eldhúsborðið og húkti yfir ísköldum kaffibolla. Hann virtist annars hugar og starði tómeygður á vegginn. Bimba sá hann þurrka tár af kinnunum og súpa á kaffinu.  - "Hvað er að ástin mín? Af hverju siturðu hér einn um miðja nótt,"  spurði hún. Addi leit upp og sagði:  "Manstu þegar við vorum að hittast á laun fyrir 20 árum, aðeins 16 ára gömul." - "Já, ég man vel eftir því," sagði Bimba.  - "Manstu þegar pabbi þinn kom að okkur þar sem við vorum að elskast í aftursætinu í bílnum mínum?"  - "Já, ég man líka vel eftir því."  -"Manstu þegar pabbi þinn dró upp byssuna, beindi henni að höfðinu á mér og sagði: Annað hvort giftistu dóttur minni eða verður næstu 20 árin í fangelsi."  - "Já, ég man vel eftir þessu elskan mín," sagði Bimba og settist við hlið eiginmannsins. Hann þurrkaði tár af hvörmunum og sagði:  "Veistu... ég hefði losnað út í dag!"

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Það hefur ekki tekið glansinn 20 ár að fara af......góður.

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 15.8.2008 kl. 09:52

2 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Góður hjá þér þessi Jóhann, kær kveðja frá Eyjum.

Helgi Þór Gunnarsson, 15.8.2008 kl. 11:17

3 Smámynd: Sigurbrandur Jakobsson

Stundum er betra að fara lengri leið en styttri

Sigurbrandur Jakobsson, 15.8.2008 kl. 16:44

4 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Hólmdís Hjartardóttir, 15.8.2008 kl. 20:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband