Á hann kannski við að kvótakerfið verði endurskoðað??

eða verður bara um fjölgun álvera að ræða?  Auðvitað á almenningur að taka á sig "skellinn" vegna útrásarinnar og vitlausra ákvarðana ráðamanna, hefur það ekki alltaf verið þannig?  Framleiðsluaukning hlýtur að þýða að meira verði leift að veiða úr fiskistofnum þjóðarinnar og að HAFRÓ taki "rannsóknaraðferðir" sínar til endurskoðunar og að unnið verði að því að umgengni um sjávarauðlindina verði bætt.
mbl.is Þurfum að búa okkur undir tímabundnar fórnir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þakka þér fyrir þína athugasemd.  Því miður get ég ekki verið sammála þér um aðrannsóknaraðferðir HAFRÓ séu vísindalegar, því til staðfestingar nefni ég "togararallið" svokallaða en á því byggir HAFRÓ ALLTsitt mat á útreikningi stofnstærðar þorsks við strendur landsins.  Togararallið er þannig framkvæmt að það er "togað" á fyrirfram ákveðnum stöðum, með samskonar veiðarfærum, á sömu skipum, alltaf á sama tíma, ekki er tekið tillit til sjávarfalla , ekki er tekið tillit til hitastigs sjávar,............, það er hreinlega ekki tekið tillit til neinna breytinga af einu eða neinu tagi.  Svona vinnubrögð get ég ekki skrifað upp á sem vísindaleg og niðurstaða svona lagaðs getur ekki orðið annað en tómt rugl eða eins og sagt er: Rubbish in Rubbish out. Samkvæmt HAFRÓ þá eru bolfiskstofnar á Íslandsmiðum í lágmarki en ég tala við sjómenn alls staðar af landinu og þá eru þeir á flótta undan þorski, þeir geta hvergi dýft niður veiðarfæri án þess að fá þorsk.  Þessar "rannsóknaraðferðir" hjá HAFRÓ eru bara engan veginn að ganga upp.

Það er ekki nóg að við fáum fleiri tegundir í lífríkið okkar hér ef okkur ber ekki gæfa til að nýta þær okkur til hagsbóta.

Jóhann Elíasson, 3.9.2008 kl. 20:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband