Opinberlega á hann að vera HÆTTUR í pólitík

Þegar hann var Forsætisráðherra "snupraði" hann Steingrím Hermannsson, þáverandi Seðlabankastjóra, fyrir að vera að tjá sig um "pólitísk" málefni.  Hefur eitthvað breyst?
mbl.is Seðlabankastjóri viðrar hugmynd um þjóðstjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Já, Davíð! Hann er orðinn eins og versti einræðisherra fyrst hann er algerlega hættur að virða þau mörk sem eðlilegt er að séu milli hinna mismunandi arma ríkisvaldsins. Og pappakallarnir í ríkisstjórnir keppast um að dansa eftir leiðsögn hans eins og algerar strengjabrúður snauðar allri sjálfstæðri hugsun. Ekki er skárri hræsnin í honum, einkavæddi bankana á þeirri forsendu að "einkageirinn" sé mun hæfari til að reka þá vel og skila hagnaði, en hverjir hafa fengið hagnaðinn? Ekki ég eða neinn í minni fjölskyldu, heldur nokkrir útvaldir menn sem hafa getað hækkað sín eigin laun með talnakúnstum á ársfjórðungsuppgjörum einum saman. Svo kemur Davíð, þessi boðberi frjálshyggjunnar og andstæðingur ríkisafskipta, og þjóðnýtir banka (í stað þess að láta hann rúlla eins og eðlilegt væri) á sama tíma og hann viðrar hugmyndir um þjóðstjórn sem er ekki beint í anda þeirrar hugmyndafræði sem hann hefur sjálfur boðað. Ef maðurinn hefur einhverntíma haft hugsjónir, þá má með þessum rökum segja að hann sé búinn að svíkja þær allar, og með slíkri framkomu gerir hann ekkert nema sverta ímynd síns fornfræga stjórnmálaflokks eins og sorglegar niðurstöður skoðakannana bera vitni um. Þeir í hópi okkar hægrimanna sem ennþá eru trúir sínum hugsjónum hugsa Davíð núna þegjandi þörfina fyrir að svíkja og eyðileggja flokkinn okkar. Í raun er hann ekkert nema pólitískur hryðjuverkamaður og nú hefur hann bætt efnahagslegri hryðjuverkastarfsemi á afrekalista sinn. Iss piss.... þetta er ekki "nýfrjálshyggja", þetta er nýfasismi!

Guðmundur Ásgeirsson, 2.10.2008 kl. 10:00

2 Smámynd: Sigurbrandur Jakobsson

Lengi lifir í gömlum glæðum, hafi einhver efast um að Davíð væri sestur í helgan stein við Kalkofsveg.

Sigurbrandur Jakobsson, 2.10.2008 kl. 13:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband