Þessi "mjúka" snertilending varð nú ansi hörð ........

....ég hefði ekki viljað upplifa "BROTLENDINGU" eða kannski þetta hafi verið brotlending?  En að það verði allt komið í gang árið 2010, eins og ekkert hafi gerst Geir er greinilega að tala um eitthvað sem hann hefur ekki hugmynd um og hvað hefur hann fyrir sér í þessu?  Margt ruglið hefur hann sagt í gegnum tíðina en þetta "toppar" það allt saman og það eru bara tilmæli, þess efni, að hann útskýri þessi ummæli sín nánar og það á mannamáli.
mbl.is Uppsveiflan hefst 2010
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Villi Asgeirsson

"Þetta er flugstjórinn sem talar. Við vorum að upplifa smá snertilendingu, en eins og allir vita er það ekkert stórmál. Rútína eiginlega. Eins og þið sjáið erum við aftur komin upp í ský."

Hann minntist auðvitað ekki á ruslahrúguna á jörðinni eða vængina sem allir voru komnir með á bakið. Hann vildi heldur ekkert tjá sig um hörpurnar sem fólk hafði í höndum.

Villi Asgeirsson, 20.11.2008 kl. 09:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband