Marklaust kosningahjal!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Að lesa þessa svokölluðu sáttagjörð um fiskveiðistefnuna, sem þessi "ríkisstjórn" gerði, er nú bara brandari út af fyrir sig.  Allt sem fram kemur þarna er einungis um almennt blaður en þarna er ekki gerð nokkur tilraun til þess að útskýra hvernig eigi  að fara að hlutunum eða hvort þessir hlutir eru yfirhöfuð framkvæmanlegir, eins og t.d það að STEFNT verði að því að allur fiskur verði seldur á markaði, það kemur ekkert meira fram um þennan lið.  Ég veit ekki betur en að þetta sé búið að vera baráttumál margra í mörg ár og mjög lítið þokað í rétta átt allan þennan tíma.  Mín tilfinning er sú að þetta plagg sé bara einhver SAMSUÐA, þessara tveggja flokka sem eru í ríkisstjórn núna, til að slá ryki í augun á ákveðnum hópi kjósenda og svo verði bara ekkert gert.  Þetta plagg er bara marklaus "froða" og flestir sem eitthvað þekkja til sjávarútvegs hljóta að sjá að þarna er bara bull á ferðinni.
mbl.is Nauðsynlegt að breyta fiskveiðikerfinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Sammála þér. kv.

Georg Eiður Arnarson, 2.4.2009 kl. 17:52

2 Smámynd: Einar Ben

Afruglun á kvótasvindli og glæpastarfseminni sem fram fer í íslenskum sjávarútvegi er ekki e-ð sem kemst fyrir á einu A4 blaði, þetta er alltof viðamikið til að svo sé.

Ég get lofað þér því að það er fullt af hugmyndum uppi á borðinu um útfærslur á kerfinu, td. hver fær að leigja til sín heimildirnar.

Heildarpottinum verður skipt á milli tegunda, veiðarfæra, stærð báta og væntanlega á milli svæða og að sjálfsögðu mun vera passað uppá það að td. HB Grandi geti leigt til sín meirihluta heimildanna.

Þessi stefna verður útfærð í fullri samvinnu við alla hagsmuna aðila bæði útgerðarinnar og fiskvinnslunar í landi.

Hér er ekki verið að fara breyta neinu með einu pennastriki eins og þegar kerfið var sett á á sínum tíma.

Georg ég er hissa að þú skulir ekki taka þessum tíðindum fagnandi þar sem stefnan er í grófum dráttum frekar svipuð ykkur hjá FF......!

kv.

Einar Ben, 4.4.2009 kl. 09:39

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það er ekkert sagt hvernig eigi að framkvæma hlutina og fæ ég ekki með nokkru móti séð að það sé nokkuð nýtt í þessum tillögum.  Það sem verður að hafa í huga við gerð svona áætlunar er að það eru MINNST tvær hliðar á öllum málum og niðurstaðan er ALLTAF málamiðlun þar af leiðandi er það í besta falli óábyrgt að setja fram svona plagg sem segir ekki neitt og gerir ekkert annað en að skapa úlfúð og misklíð.

Jóhann Elíasson, 4.4.2009 kl. 13:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband