Er hægt að ganga lengra í lágkúrunni????????

Svo eru menn að tala um að einhver smá breyting á kvótakerfinu setji útgerðina á hausinn.  Ég get nú ekki betur séð en að "skussarnir" sem hafa rekið þessi útgerðarfyrirtæki svo "vel" og séð um að sjávarútvegurinn hér á landi sé rekinn með "hagkvæmum" hætti, séu sjálfir að sjá um að koma þessum fyrirtækjum á hausinn án þess að kaupa eitt einasta kíló af kvóta.  Auðvitað átti að nýta tækifærið þegar bankarnir voru þjóðnýttir og þjóðnýta útgerðina í leiðinni.  En fyrst þetta var ekki gert er alveg lágmarkið að bankarnir HIRÐI þau útgerðarfyrirtæki sem nú þegar eru orðin GJALDROTA og sjái til að menn sem hafi einhverja burði og þekkingu reki þessi fyrirtæki.
mbl.is Skip og veiðiheimildir í nýtt félag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sammála. Það á að taka þetta af "vondu köllunum". Ekki má samt gleyma því að margir útgerðarmenn eru stálheiðarlegir og hafa ekkert uppá sig að klaga.

Karpi (IP-tala skráð) 13.6.2009 kl. 23:02

2 Smámynd: Víðir Benediktsson

Held að Hannes Hólmsteinn hafi alveg gleymt að minnast á þennan þátt kvótakerfisins þegar hann reið um héruð og boðaði fagnaðarerindið. http://www.youtube.com/watch?v=AoD8umlAOFs&feature=PlayList&p=825570607F9A01E7&playnext=1&playnext_from=PL&index=2

Víðir Benediktsson, 13.6.2009 kl. 23:02

3 Smámynd: Árni Gunnarsson

Kemur svona frétt einhverjum á óvart?

Árni Gunnarsson, 13.6.2009 kl. 23:19

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Samkvæmt þessu hefur gömlu birgðunum verið mokað í Hannes Hólmstein , þegar var endurnýjað í lyfjakistunum.

Jóhann Elíasson, 13.6.2009 kl. 23:37

5 identicon

Efast stórlega að Hannes Hólmsteinn taki töflurnar sínar á morgnanna.

Ingi J Valgeirsson (IP-tala skráð) 14.6.2009 kl. 05:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband