Trúðurinn í Fjármálaráðuneytinu reynir af máttleysi að verja sig!!!!!!!!!!!!!!!!

Það er eitt sem hann hefur aldrei lært og getur ekki lært, en það er að skammast sín.  Hann er orðinn svo röklaus að hann grípur til LYGA, sem hann er ekki alveg óvanur að gera og virðist nokkuð oft hafa komist upp með, en það eru takmörk fyrir því hvað menn eiga að komast upp með.  Hann er búinn að vera það lengi á þingi að hann á að þekkja stjórnskipan landsins nokkuð vel og því veit hann mjög vel að þegar hann vitnar í það að Davíð Oddsson hafi verið á móti því að AGS kæmi hingað en samt sem áður hafi hann skrifað undir samstarfssamning við AGS aðeins mánuði síðar.  Þetta nefnir Steingrímur Joð til marks um það að Davíð segi bara eitt en geri svo annað.  Þarna er Steingrímur Joð á kafi í eigin "lygaþvælu" upp fyrir eyru,  því á þessum tíma starfaði Davíð Oddsson sem embættismaður og bar að gera það sem pólitískur yfirmaður hans sagði honum að gera hvort sem honum líkaði það betur eða verr.  Það er ekki nema von að allt fari hér í klúður þegar svona undirförulir lygalaupar eru við stjórnvölinn.  Svo er hann orðinn ÞÆGUR "kjölturakki" fyrir heilaga Jóhönnu og gerir allt sem hún segir honum að gera til að draumur hennar um ESB geti ræst.  Já hann geltir þegar honum er sigað.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Ég þekki hann ekki fyrir sama mann.

Sigurður Þórðarson, 5.7.2009 kl. 16:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband