HEIÐARNES?????

Ekki nóg með að málfræði og notkun málsins sé að þvælast fyrir "snillingunum" á mbl.is heldur er landafræðin til vandræða líka.  Ekki kannast ég við Heiðarnes á Langanesi en Heiðarhöfn er velþekkt kennileiti þar og ekki er ósennilegt að Gísli hafi tekið stefnuna þangað frá Raufarhöfn.
mbl.is Gísli kominn að Langanesi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Heiðarnes er nesið norðan við Heiðarhöfn.

http://ja.is/kort/#x=674215&y=648574&z=7&type=aerial

Axel Þór Kolbeinsson, 9.7.2009 kl. 10:05

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þakka þér fyrir, ég var nú reyndar búinn að finna þetta það er nú ekki meira kennileyti en það að þetta er "lítill" tangi sem skýlir höfninni í Heiðarhöfn og það eru mjög fáir sem kannast við þetta "nes".

Jóhann Elíasson, 9.7.2009 kl. 10:31

3 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Ég þekki nú ekki til þarna sjálfur, en mundi eftir að hafa séð þetta örnefni vegna þess að ég var að skoða kort af Langanesi í gær eða fyrradag vegna hugmyndar sem ég fékk.

Axel Þór Kolbeinsson, 9.7.2009 kl. 10:36

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég bjó nú á Þórshöfn á Langanesi megnið af minni bernsku og nokkur fjöldi skyldmenna minna býr enn fyrir norðan, systir mín er einn af eigendum Heiðarhafnar en þetta gerir mig að sjálfsögðu ekki að neinum sérfræðingi í örnefnum á þessu svæði eins dæmin sanna.

Jóhann Elíasson, 9.7.2009 kl. 10:48

5 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Er eitthvað búið utar á Langanesi en Heiðarhöfn?

Axel Þór Kolbeinsson, 9.7.2009 kl. 11:00

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ysti bærinn sem er búið á er Hlíð, það er ekki búið á Heiðarhöfn.

Jóhann Elíasson, 9.7.2009 kl. 11:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband