LÍTUR ÁGÆTLEGA ÚT Á "PAPPÍR" EN GENGUR EKKI UPP Í PRAKSÍS.....

Eins og fram kom á stöð 2 í gærkvöldi, þá eru margir í þeirri stöðu í dag að GETA borgað lánin sín í dag en sjá EKKI tilgang með því að halda greiðslum áfram, samkvæmt þessari hugmynd er EKKI ætlunin að aðstoða þetta fólk neitt, svo þessi hugmynd er með öllu HANDÓNÝT og ber því að kasta henni út í hafsauga.  Það að pissa í skóinn sinn er bara þægilegt meðan hl.... er volgt en það kólnar fljótt og þá versnar ástandið til muna.


mbl.is Grunnur að lausn á vanda heimila?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

En af hverju ætti að aðstoða þá sem geta borgað en vilja bara ekki borga?

Lilja (IP-tala skráð) 3.9.2009 kl. 09:42

2 Smámynd: Þorgeir Ragnarsson

Ef menn ætla að afskrifa þá eiga menn að setja hóflegt þak á þá upphæð sem afskrifað er af. Þannig má tryggja að þeir sem gengu allt of langt í skuldsetningu fái ekki miklu meira gefins en aðrir.

Þorgeir Ragnarsson, 3.9.2009 kl. 09:51

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Sú aðstoð sem kemur "flestum" til góða og verður jafnvel til þess að auka "GREIÐSLUVILJA" þjóðarinnar, er að mínu mati, að FÆRA "vísitöluna" til þess sem hún var um "hrun" og afnema hana í áföngum.  Þetta snýst ekki um að aðstoða þá sem geta borgað en vilja það ekki heldur að efla samstöðu og móral innan þjóðarinnar.  Ég vona að þetta svari spurningu þinni Lilja.

Jóhann Elíasson, 3.9.2009 kl. 09:51

4 Smámynd: Lúðvík Júlíusson

Jóhann, verða svo bara allir ríkari?  Meiri peningar, meiri neysla, meiri störf og allt ókeypis án verðbólgu?  Þetta hljómar of gott til að vera satt.

Lúðvík Júlíusson, 3.9.2009 kl. 10:00

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Lúðvík, það var enginn að tala um að verðbólgan hyrfi og allir yrðu ríkir, kannski þú ættir að koma með einhverja lausn á málinu eða lætur þér kannski betur að gagnrýna þær lausnir sem koma fram?

Jóhann Elíasson, 3.9.2009 kl. 10:16

6 Smámynd: Lúðvík Júlíusson

aðstoða þá sem geta ekki greitt ekki aðra, þá verða neikvæðar afleiðingar miklu minni og árangurinn meiri.

Lúðvík Júlíusson, 3.9.2009 kl. 10:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband