þessar hugleiðingar ættu ekki að koma neinum á óvart......

En persónulega finnst mér lögin um ráðherraábyrgð of almennt orðuð og í þeim of mörg "EF", til þess að þau geti haldið.  Góðir lögfræðingar geta örugglega fundið í þeim gloppur sem hægt er að smjúga í gegn um.
mbl.is Ráðherrar fyrir dóm?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það þarf ekki einu sinni góða lögfræðinga til þess. Íslensk lög eru túlkuð og þeim framfylgt eftir geðþótta. Það er ekkert nýtt, Íslendingum hefur bara langflestum verið alveg slétt sama.

Helgi Hrafn Gunnarsson (IP-tala skráð) 18.11.2009 kl. 07:40

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Alveg rétt Helgi lögfræðingurinn þyrfti ekki einu sinni að vera í meðallagi.

Jóhann Elíasson, 18.11.2009 kl. 07:46

3 identicon

þetta er kanski satt en svona væri ekki hægt ínoreigi.

gishj (IP-tala skráð) 18.11.2009 kl. 08:08

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég hjó eftir því í fréttunum í morgun að bankastjórar hefðu ekki þorað að gera launakröfur í bankann eins og starfsfólkið, vegna ótta við almenningsálitið.  Þetta segir mér að tuð okkar hér er sterkara og hefur meiri áhrif en við gerum okkur ef til vill grein fyrir.  Við erum farin að setja pressu á umræðuna og aðgerðir stjórnvaldsins.  Það er gott mál.  Meira af slíku.  Látum yfirstéttina ekki komast upp með neitt múður.  Veltum sjálf upp hverjum steini og velgjum þeim undir uggum svo að þeir fari að hræðast umræðuna.  Þá leysist ef til vill upp þetta lím samtryggingar og klíkuskapar milli auðkýfinga og stjórnvalda sem eru saman í þessari skiptingu til að tryggja eigin hag.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 18.11.2009 kl. 09:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband