NÚ Á AÐ FARA AÐ LÁTA AÐ SÉR KVEÐA Í SAGNFRÆÐINNI !!!!!!!!!!!!!!!!!

Þegar menn geta ekki lengur staðið í lappirnar og beitt sér í málum sem einhverju skipta er valið að reyna að slá pólitískar keilur á gömlum málum.  Er ekkert þarfara að gera á Alþingi en að velta sér uppúr "gömlum málum"?
mbl.is Vilja að öll skjöl um stuðning við Íraksinnrás verði birt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Unnar

Veit ekki betur en að Íraksstríðið standi ennþá og ástandið hörmulegt í landinu. Um að gera að fá það upp á borðið hvað olli því að við fórum að styðja þetta rugl.

Unnar, 2.12.2009 kl. 14:56

2 Smámynd: Baldur Hermannsson

Þetta heitir á góðri íslensku að drepa málinu á dreif!

Baldur Hermannsson, 2.12.2009 kl. 15:01

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ekki er ég að bera á móti því heldur tímasetningunni Unnar

Jóhann Elíasson, 2.12.2009 kl. 15:03

4 Smámynd: Unnar

Já, það er svo sem hægt að pæla í því. En þetta er ekkert gamalt mál. Svo er þetta bara umræða sem kemur á eftir Icesave og mun ekkert hafa áhrif á það mál. Það er varla að þurfi að ræða það heldur mikið.. þetta snýst bara um að fá gögn upp á borðið sýnist manni.

Unnar, 2.12.2009 kl. 15:12

5 Smámynd: Baldur Hermannsson

Jú Unnar, þetta er orðið ansi gamalt mál. Var innrásin ekki 2003? Afar grunsamlegt að fara að rifja þetta upp núna. Greinilegt að Ögmundur er bara að blekkja almenning.

Baldur Hermannsson, 2.12.2009 kl. 15:13

6 identicon

Íhaldsmenn kveinka sér að sjálfsögðu undan þessu máli.

En æðrist ekki! Davíð Oddsson er á fullu við að endurskrifa söguna.

Bráðum kemur að þessu máli og hann mun redda þessu!!! 

Svavar Bjarnason (IP-tala skráð) 2.12.2009 kl. 16:14

7 Smámynd: Jóhann Elíasson

Hvaða bull var nú þetta eiginlega Svavar?

Jóhann Elíasson, 2.12.2009 kl. 16:19

8 identicon

Blessaður Jóhann.

Þú verður endilega að gerast áskrifandi að mogganum.

Þá skilurðu þetta bull mitt!!!!!!

Svavar Bjarnason (IP-tala skráð) 2.12.2009 kl. 16:24

9 Smámynd: Baldur Hermannsson

Ég kaupi Mogann, les hann daglega en finn ekki staf um endurritun sögunnar.

Baldur Hermannsson, 2.12.2009 kl. 16:29

10 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þegar menn eru að gera athugasemdir á blogginu er viðeigandi að menn séu hvorki undir áhrifum áfengis eða lyfja Svavar

Jóhann Elíasson, 2.12.2009 kl. 16:39

11 identicon

Rökfastur og málefnalegur eins og venjulega Jóhann!!

Ég biðst afsökunar á því að hafa snert einhverja kviku.

Svavar Bjarnason (IP-tala skráð) 2.12.2009 kl. 16:47

12 Smámynd: Unnar

Baldur, innrásin var 2003 en stríðið logar enn ekki satt? Svo skiptir engu hvenær þessi innrás var gerð. Það skiptir máli að vita hvað lá á baki þeirri ákvörðun að styðja innrás inn í annað land... enda var þetta fáránleg ákvörðun. Og ég sé ekki afhverju má ekki ræða þetta mál eftir Icesave. Hvað skiptir svona miklu máli?? Sykurskatturinn?

Unnar, 2.12.2009 kl. 17:04

13 Smámynd: Baldur Hermannsson

Já til dæmis, sykurskatturinn skiptir miklu meira máli en þetta. Og annað skiptir líka meira máli: hvað gerðist á bak við tjöldin þegar forsetinn svívirti bandaríska sendiherrann? Við erum að verða fyrir ýmsu hnjaski eftir þetta dæmalausa klúður og Össur snýr bara út úr þegar hann er spurður í þinginu. Ögmundur er bara að drepa á dreif landráðamálinu mikla og þú veist það.

Baldur Hermannsson, 2.12.2009 kl. 17:12

14 Smámynd: Unnar

Nú ert þú bara að hjakkast í einhverri pólitík... XD versus allt annað. Ég nenni ekki slíkri umræðu. Sykurskattur skiptir miki minni máli en þeir hundruðir þúsunda sem eru búin að drepast í Írak..

Unnar, 2.12.2009 kl. 18:23

15 Smámynd: Baldur Hermannsson

Þótt einhver möppudýr á íslandi fari að velta sér upp úr minnismiðum og skjalabunkum frá 2003 þá mun það ekki vekja upp hina dauðu. Hættu nú þessu þvaðri Unnar og fáðu þér eitthvað gott að borða.

Baldur Hermannsson, 2.12.2009 kl. 18:29

16 Smámynd: Unnar

Annars held ég að Ögmundur sé ekki að nota Írak í þeim tilgangi sem þú tilgreinir. Held að hann sé meiri maður en það. Hann stóð líka fyrir því að ræða Icesave í ræmur á Alþingi.

Unnar, 2.12.2009 kl. 18:31

17 Smámynd: Unnar

Þetta snýst ekki um nein möppudýr. Þetta snýst um að taka leyndina af þessum skjölum.. enda löngu kominn tími til. Ótrúlegt að þú skulir vera að mæla á móti þessu... er þér svona annt um fyrri ríkisstjórn að það megi ekki ræða þetta?

Unnar, 2.12.2009 kl. 18:33

18 Smámynd: Baldur Hermannsson

Mér er skítsama um fyrri ríkisstjórn og mér finnst að yfirleitt sé farsælast að hafa sem mest uppi á borðinu fyrir allra augum. En það er siðleysi af verstu sort að setja þetta mál í einhvern forgang núna, einkum þegar við blasir að ríkisstjórnin gefur ekkert upp um þau mál sem varða líf þjóðarinnar.

Baldur Hermannsson, 2.12.2009 kl. 18:52

19 Smámynd: Unnar

Er þetta í einhverjum forgangi? Icesave er í forgangi. Á undan hvaða málum verður þetta mál? Ert þú með það á hreinu? Fínt að hafa það á hreinu áður en maður missir sig yfir hlutunum.

Unnar, 2.12.2009 kl. 18:56

20 Smámynd: Baldur Hermannsson

Ögmundur á að geyma þetta mál þangað til kyrrð er komin á þjóðfélagið. Ég er að vísu ekki bjartsýnn á að sá dagur komi meðan þetta skelfilega vanhæfa lið stjórnar landinu.

Baldur Hermannsson, 2.12.2009 kl. 19:01

21 identicon

Ég er gáttaður á því hve margir íhaldsmenn eru tilbúnir að verja stuðninginn við stríðið gegn Írak.

En Framsóknarmenn virðast skammast sín fyrir þetta og reyna allment að þvo þetta af sér.

Svavar Bjarnason (IP-tala skráð) 2.12.2009 kl. 19:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband