ER EKKI MUN HAGKVÆMARA OG ÖRUGGARA AÐ FLYTJA ÍBÚANA ANNAÐ????????

Alveg er þetta dæmigert fyrir "bútasauminn" og stefnuleysið í byggðamálum landsins.  Brimið við suðurströndina lætur ekki einhverja "vesæla" sjóvarnargarða stoppa sig, þeir tefja bara framgang mála en stoppa ekkert.  Hver verður þá ávinningurinn af þessum peningaaustri?  Ofan á þetta eru menn farnir að reikna með því að Katla fari að minna á sig og jafnvel gosi í Mýrdalsjökli.  Nei miðað við aðstæður þá er mun betra að flytja alla af staðnum.


mbl.is Fjárveiting til sjóvarna við Vík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Steinsson

Þá þarftu nú gott betur en 100 milljónir, næstum því öll atvinnustarfsemi í Vík fer fram á sandinum ásamt fjölda ýbúðarhúsa og hringvegurinn gæti verið í hættu. Annars getur verið að það að tefja sé allveg nóg, Kötlugos mun miðað við reynslu af fyrri gosum færa ströndina fram um einhver hundruð metra.

Einar Steinsson, 13.12.2009 kl. 11:09

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Einar, hvar í blogginu tala ég um 100 milljónir? Það stendur reyndar í fréttinni að með þessum 70 milljónum verði búið að veita 100 milljónum í verkið á næsta ári en áætlaður heildakostnaður við verkið sé 200 milljónir.  Eitthvað fleira hefur nú Kötlugos í för með sér en að stækka ströndina.

Jóhann Elíasson, 13.12.2009 kl. 11:24

3 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Helgi Þór Gunnarsson, 13.12.2009 kl. 11:53

4 Smámynd: Eiður Ragnarsson

Ódýrara að flytja alla burt??

Það er líka búið að sýna fram á að það er "hagkvæmt" að leggja ísland af, það er svo dýrt að halda hér úti byggð...

Það er líka mun ódýrara að sleppa heilbrigðiskerfinu eins og það leggur sig og láta náttúruvalið um það að velja hverjir tóra en hverjir ekki....

Eigum við ekki bara að drífa í því??

Eiður Ragnarsson, 13.12.2009 kl. 12:29

5 Smámynd: Jónína Sólborg Þórisdóttir

Langt síðan ég hef séð svona heimskulega bloggfærslu

Jónína Sólborg Þórisdóttir, 13.12.2009 kl. 13:28

6 Smámynd: Björn Jónsson

Þú ert þá væntanlega að tala um að flytja alla af stærri eyjunni, og hvert þá? Á Jósku heiðarnar eins og einhverjir Baunar stungu uppá fyrir margt löngu. Þá yrði nú fínt að lifa í Eyjum, engir skattar til norðureyjunnar.

Björn Jónsson, 14.12.2009 kl. 01:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband