Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2021

ALVEG ER HÚN HLÆGILEG ÞESSI "RÚSSAGRÝLA", SEM ER Í GANGI HJÁ EINHVERJUM

Það mætti halda að tíminn hafi stöðvast hjá þessu liði þegar KALDA STRÍÐIÐ stóð sem hæst???????


mbl.is Sögð hafa ætlað að selja gögn Pelosi til Rússa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Föstudagsgrín

Ungt par sat í stofunni heima hjá stúlkunni, seint að kvöldi og voru að drekka rauðvín og borða osta sem sagt bara huggulegt kvöld við kertaljós og ekki skemmdi snarkið í arninum fyrir.  Þegar komið var vel framyfir miðnætti varð ungi maðurinn að sinna kalli náttúrunnar og spurði því stúlkuna hvar klósettið væri.  Stúlkan sagði honum það en sagði jafnframt að klósettið væri við hliðina á svefnherbergi foreldra hennar og því væri “betra”, svo þau vöknuðu ekki, að hann “notaði” bara eldhúsvaskinn.  Eins og flestir karlmenn þá gerði hann það sem konan sagði, en eftir smástund var kallað úr eldhúsinu: “Áttu ekki klósettpappír”??????????????


AUÐVITAÐ ER ÞETTA ALVEG STÓRFURÐULEG ÁKVÖRÐUN OG VIRÐIST ALLS EKKI TEKIN MEÐ HAGSMUNI ÞJÓÐARINNAR Í FYRIRRÚMI...

Og nú var viðtal við konu sem er hagfræðingur við Danskan háskóla og sagði hún að 20% af lánasafni bankans væri í "frystingu".  Það þarf nú ekki mikla spekinga, til að sjá það að þetta kemur til með að hafa MIKIL áhrif á VERÐ BANKANS.  Þessu  hefur verið haldið leyndu fyrir landsmönnum og dettur manni í hug að "samið" hafi verið milli Sjálfstæðisflokks og VG þess efnis að VG "fái" hálendisþjóðgarð og á móti fái Sjálfstæðisflokkurinn sölu á Íslandsbanka.....


mbl.is Ekki skrýtnari tímasetning en hver önnur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞÁ GETA ÞEIR ALVEG EINS LAGT FRÉTTADEILDINA NIÐUR STRAX...........

Og farið að gera ráðstafanir til að leggja fyrirtækið niður og stöðva starfsemina alveg.  Það er hætt við því að ekki hafi verið hugsað alveg til enda þegar þessi ákvörðun var tekin.................


mbl.is Fréttir Stöðvar 2 aðeins aðgengilegar áskrifendum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

NÓG AÐ SKOÐA SAMSKIPTI ESB OG ÍSLANDS SÍÐUSTU 20 ÁRIN, ÞÁ SÉST SVART Á HVÍTU HVER HAGUR LANDSINS HEFUR VERIÐ - ER EINHVER ÁSTÆÐA TIL AÐ ÆTLA AÐ BREYTING VERÐI ÞAR Á NÚNA????

Og svo til að "kóróna" allt saman berast fregnir þess efnis að BREXIT-SAMNINGURINN MILLI ESB OG BRETA, SÉ MUN HAGSTÆÐARI EN EES-SAMNINGURINN. Það ætti ÖLLUM að verra orðið það ljóst að ÞAÐ ÞARF AР SEGJA EES-SAMNINGNUM UPP OG ÞAÐ STRAX ÁÐUR EN HANN VELDUR ENN MEIRI SKAÐA OG SKERÐINGU Á SJÁLFSTÆÐI LANDSINS.  Og svo þarf einnig að segja SCHENGEN-samningnum upp................


mbl.is „Þetta er allt í lausu lofti“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HVERNIG ER HÆGT AÐ SEGJA AÐ EFTIR 4-1 SIGUR HAFI LIÐIÐ ÁTT Í "BASLI" MEÐ MÓTHERJANN??????

Helst dettur manni í hug að sá sem skrifar "fréttina", hafi  FC Liverpool ekkert ofarlega á vinsældalistanum...........


mbl.is Liverpool átti í basli með varalið Aston Villa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ERU MENN LOKSINS AÐ FARA AÐ SKOÐA VERÐLAGNINGU SJÁVARFANGS HÉR Á LANDI????

Að sumu leiti er það ágætt að þetta svokallaða „Samherjamál“ skyldi koma upp.  Það hefur lengi verið opinbert leyndarmál að uppgangur Samherja ætti sér ýmsar dökkar hliðar, sem ekki þyldu dagljósið.   Aldrei hefur verið hægt að sanna að eitthvað ólöglegt hafi átt sér stað og meira að segja var forstjóri Samherja svo óforskammaður að heimta það að Seðlabankastjóri yrði saksóttur vegna rannsóknar og húsleitar, sem bankinn framkvæmdi á Samherja og það sem alvarlegra er að Forsætisráðherra blandaði sér í málið með því að senda til lögreglu meintan „leka“ frá Seðlabankanum til RÚV.  EN ÞAÐ ER RÉTT AÐ ÞAÐ KOMI FRAM AÐ MÁLINU VAR VÍSAÐ FRÁ, VEGNA FORMGALLA.  ÞAÐ ER EKKI RÉTT AÐ SAMHERJI HAFI VERIÐ SÝKNAÐUR Í ÞESSU MÁLI eins og margir hafa viljað halda fram, þar á meðal forstjóri Samherja.

En það að þetta Samherjamál kom upp, segir það okkur ekki að það er full ástæða til að rannsaka viðskipti og viðskiptahætti ALLRA stóru sjávarútvegsfyrirtækjanna á Íslandi? Fyrir daga kvótakerfisins og fyrstu ár þess, voru á markaðnum tveir risar í sölu á fiski á erlenda markaði Þetta voru SÍS (Samband Íslenskra Samvinnufélaga) og SH (Sölumiðstöð Hraðfrystihúsanna).  Skiptingin á milli þessara sölusamtaka var nokkuð skýr,  SÍS sá um söluna fyrir kaupfélögin og fyrir þá sem voru „Framsóknarmegin“ í pólitíkinni en SH sá um söluna fyrir þau fyrirtæki sem voru „Sjálfstæðisflokksmegin“ í pólitíkinni.  En þá kom Samherji til sögunnar og riðlaði „öllu sölukerfinu“ með því að stofna sín eigin sölusamtök og eftir það hafa þessi tvö sölusamtök smám saman verið að lognast útaf misjafnlega hratt þó.  En eitt er þó sem ætti að hafa í huga: SAMHERJI HEFUR ALVEG FRÁ UPPHAFI SINNAR ÚTGERÐARSÖGU ALDREI SETT EINN EINASTA SPORÐ Á MARKAÐ.  Og hvers vegna skyldi það vera?  Jú, því er auðsvarað.  Ef þarf að greiða markaðsverð fyrir fiskinn, hagnaður útgerðarinnar eykst og þá verður erfiðara að réttlæta það að áhöfnin taki þátt í að greiða olíuna á fiskiskipin og að dregið sé af launum sjómanna til að taka þátt í nýsmíði fiskiskipaflotans og ekki nokkur leið að réttlæta LÆKKUN veiðigjalda og um leið verður minni hagnaður til að flytja úr landi, í skattaskjól fyrir eigendur fiskvinnslufyrirtækjanna, sem einnig eru með útgerð á sinni könnu.

Eru menn virkilega svo barnalegir að halda að Samherjamenn séu þeir einu sem stunda þetta?  Frá lýðveldisstofnun, sáu þessu tvenn sölusamtök um að selja fiskinn úr landi og að hluta til eftir að kvótakerfið var sett á.  Þetta var til þess að útgerðin fékk skammtað eins skít úr hnefa „afkomu“ sem svo aftur og aftur kallaði á gengisfellingar Íslensku krónunnar, til að rétta hlut útgerðarinnar.  Fljótlega áttuðu útgerðarmenn sig á því að til þess að „mjólka“ sem mest út úr fiskveiðiauðlindinni YRÐU þeir að koma sér upp FISKVINNSLU, þeir útgerðarmenn sem voru  svo framsýnir og sáu þetta á sínum tíma, STJÓRNA SJÁVARÚTVEGSMÁLUNUM Á ÍSLANDI Í DAG. En svo kom Samherji til sögunnar, þeir stofnuðu sitt eigið sölufyrirtæki, þannig gerðu þeir tengslin milli útgerðar og vinnslu mun sterkari en áður hafði verið.  Umskiptin urðu ekki á einni nóttu en smám saman „lognuðust“ þessi tvö sölufyrirtæki útaf og útgerðin varð öflugri.  ÞARNA ER KOMIN SKÝRINGIN Á ÞVÍ HVAÐ VELDUR ÞVÍ AÐ ÚTGERÐIN ER MEÐ SVONA MIKLU BETRI AFKOMU EFTIR AÐ KVÓTAKERFIÐ VAR SETT Á.   Þetta telja stuðningsmenn kvótans, vera sín „sterkustu rök“ fyrir því að viðhalda núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi og dæmi nú hver fyrir sig.

Stærsti þátturinn í að þetta SVINDL var og er mögulegt, er þetta TVÖFALDA VERÐLAG SJÁVARAFURÐA SEM HEFUR VERIÐ Í GILDI HÉR Á LANDI Í MARGA ÁRATUGI.  Annars vegar er fiskverð ákveðið af stjórnvöldum sem gildir um útgerðir sem eru aðgang að fiskvinnslu (hvaða gögn eru höfð til grundvallar er mér alveg hulin ráðgáta og sjálfsagt einhverjum fleirum en ég auglýsi eftir þessu hjá þeim sem til þekkja), hins vegar fer fiskur,  frá bátum sem EKKI eru með fiskvinnslu á sínum snærum, á fiskmarkað.  Þetta verður til þess að verð á fiski á markaði er mjög hátt, eins og kerfið er í dag og fiskverð til okkar neytenda verður þar af leiðandi miklu hærra en annars yrði.

Það var árið 1977, sem ég fór í mína fyrstu „siglingu“ á erlenda markaði með fisk.  Ég hugsaði ekki um það þá en það var nokkuð algengt að það væri tvöfalt til þrefalt verð á fiski á erlendum mörkuðum en það sem fékkst hér á landi.  Það var hægt að lenda í svokölluðum „downtúrum“ en verðin fóru mest eftir framboði og eftirspurn, árstíma, veðurfari og það albesta var að eiga „söludag“ fyrsta dag sem markaðir opnuð eftir jólahátíðina en þá var alveg pottþétt góð sala.  Ég man eftir einum alveg sérstaklega slæmum túr á togaranum Júni frá Hafnarfirði, sumarið 1978, en þá barst mjög mikill fiskur að landi og frystihúsið gat ekki tekið við aflanum frá okkur (við vorum á veiðum á vestfjarðamiðum og fengum á tíu dögum rúmlega 400 tonn af þorski), þá var brugðið á það ráð að senda okkur í „siglingu“ til Hull og svo áttum við að fara í slipp í South Sields, sem er rétt við Newcastle en norðan við Hull.  Það var mikil veðurblíða og gífurlega heitt í veðri þegar þetta var og skemmst frá því að segja að salan var ein allsherjar hörmung.  Sá hluti aflans sem seldist fór á mjög lágu verði og það sem verra var er að 90 tonn seldust bara alls ekki og var bara keyrt í GÚANÓ.  Árið 1985 fór ég svo í mína síðustu „siglingu“, þá seldum við „hæfilegt magn“ rétt fyrir jól og gerðum ágætis sölu.  Framan af var verið að „friða“ sjómenn, vegna þess hve fiskverð var lágt hér á landi, með því að gefa leyfi fyrir því að senda einn til tvo gáma af fiski á markaði í Englandi eða Þýskalandi (Þorskur,ýsa og koli fóru á England en karfi og ufsi fóru á Þýskaland). þetta lagðist af um 1990 hjá flestum og var því svarað til að ef menn væru óánægðir með fiskverðið skyldu menn bara fá sér aðra vinnu.

En hvað  er mögulegt að gera til að þessi svokallaði „GJAFAKVÓTI“ verði upprættur og öll spillingin í sambandi við hann.

Ég tel að það eigi að kippa „GJAFAKVÓTANUM“ af með það sama.  Við yrðum með kvótakerfi áfram en með annarri útfærslu.  Það sér það hver heilvita maður að þessi „sýndarmennska“, sem er í gangi með „GJAFAKVÓTANN“ í dag gengur engan veginn upp.  Þó svo að það standi í lögum um stjórnun fiskveiða að fiskveiðiauðlindin sé sameign þjóðarinnar, þá er reyndin ekki sú í raunveruleikanum.  Útgerðarmenn færa „kvótann“ sem EIGN  í bókhaldinu hjá sér og það sem meira er kvótinn ERFIST. Það er svo mikil hrópandi mótsögn í þessu kerfi í dag að menn sem skoða þennan ófögnuð verður örugglega flökurt.  Fyrst og fremst tel ég að deila eigi kvótanum á milli byggðarlaga.  Segjum sem svo að Þorlákshöfn væri úthlutað 5.000 tonna þorskkvóta.  Í Þorlákshöfn landar síðan bátur 20 tonnum af þorski, þessi 20 tonn myndu dragast frá heildar þorskkvóta Þorlákshafnar, þannig að þar væru eftir 4.980 tonn af þorski.  En nú á útgerð þessa báts eftir að greiða fyrir að veiða þessi 20 tonn af þorski og væri gjaldið eitthvað hlutfall af aflaverðmætinu, t.d 20 % af aflaverðmæti, menn hljóta að sjá að það er náttúrulega tóm þvæla að veiðigjöld séu ákveðin eftir að tillit hefur verið til FJÁRFESTINGA viðkomandi útgerðar, eins og gert er í dag.  Þannig að sumar stórútgerðir greiða ENGIN veiðigjöld, vegna þess að þau eru að fjárfesta svo mikið í skipum og búnaði (bara það að kaupa eitt flottroll verður til þess að ekki þarf að greiða nein veiðigjöld það árið). og svo er algjört grundvallaratriði að hver einasti landaður fiskur fari á markað þannig verði slitin tengslin á milli veiða og vinnslu, sem hefur verið helsta meinsemdin í Íslenskum sjávarútvegi.  Nú kunna ýmsir að reka upp ramakvein, en ég minni á það að það þurfa allar greinar iðnaðar að greiða gjald fyrir það hráefni sem er notað og því skyldi ekki útgerð gera það líka?  Þessi tekjustofn yrði síðan notaður til þess að fjármagna hafrannsóknir (og þá er ég að meina ALVÖRU hafrannsóknir ekki stofnanir eins og HAFRÓ sem stunda einhverjar rannsóknir sem eru ekki í neinu sambandi við raunveruleikann og skal þar fyrst minnst á „togararallið“ þeirra sem allt stofnstærðarmat þeirra á þorski byggist á) , veiðieftirlit og landhelgisgæslu.  Nú segja einhverjir að þeir sem eru í útgerð í dag og hafa KEYPT sínar veiðiheimildir, hvað á að gera í þeirra málum?  Þarna hafa flestir staðið á gati aðallega vegna þess að þessum fyrirtækjum hefur verið heimilað að EIGNFÆRA veiðiheimildirnar í bókhaldi sínu og síðar var þeim heimilt að VEÐSETJA þær en þá byrjaði nú VITLEYSAN fyrir alvöru menn fóru að taka LÁN út á óveiddan fisk (eins fáránlegt og það hljómar) og það sem meira er þessar heimildir eru í trássi við mörg gildandi lög (t.d lög um fiskveiðistjórnun og eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar svo eitthvað sé nefnt).  Ég hef ekki á takteinum hvernig eigi að leysa skuldastöðu útgerðarinnar enda myndi ég nú telja að það þurfi að skoða hvert einstakt tilfelli fyrir sig, t.d verður að liggja alveg ljóst fyrir hvernig skuldirnar eru tilkomnar og hvers vegna var til þeirra stofnað.  Ef farin yrði sú leið að INNKALLA ALLAR veiðiheimildirnar á einu bretti því að innkalla heimildirnar smátt og smátt held ég að sé eingöngu að flýja þann gríðarlega vanda sem við erum komin í með kvótakerfið og það býður eingöngu upp á að það verði gerð einhver „bráðabirgðaúrræði“ sem eingöngu myndu auka á þann vanda sem þegar væri til staðar, sem ég tel albesta kostinn í stöðunni, væru þeir aðilar sem eru nú þegar í útgerð með TALSVERT MIKIÐ forskot á þá sem hygðust koma inn í greinina því þeir ættu þegar skipin og veiðarfærin, sem eru notuð við veiðarnar.  Það er bara óhjákvæmilegt að sumar útgerðir eiga eftir að fara í gjaldrot, það gildir bara það sama um útgerðina og önnur fyrirtæki.  Málið er að það er alveg gífurleg offjárfesting í útgerðinni og ég er bara ekki alveg viss um að menn hafi farið eftir einhverri skynsemisreglu í þeim efnum.

 Með ráðstöfun af þessu tagi væri komið í veg fyrir að kvóti safnist til örfárra aðila, endurnýjun innan greinarinnar ætti að vera möguleg og einnig að byggð myndi lítið sem ekkert raskast en gæti styrkst aftur. Með því að nota þessa aðferð við veiðistjórnunina væri komið í veg fyrir svokallað kvótabrask og fiskvinnslan í landi gæti sérhæft vinnslu sína.

Það hefur mikið verið rætt um það að útgerðin „gæti ekki“ greitt fyrir veiðiheimildirnar, þetta er náttúrulega bull og ekkert annað.  Ég veit ekki um neina atvinnugrein, sem ekki þarf að greiða fyrir hráefnið í lokaframleiðslu sína.  Að sjálfsögðu á útgerðin að greiða eitthvað fyrir hráefnið og ekki væri óeðlilegt að 20% af lönduðum afla færi í svokallað veiðigjald. 

EINA RAUNVERULEGA LAUSNIN Á ÞESSU VANDAMÁLI MEÐ TVÖFÖLDU VERÐLAGNINGUNA, ER AÐ ALLUR FISKUR FARI Á MARKAÐ OG ALLIR FISKKAUPENDUR SITJI VIÐ SAMA BORÐ.  OG ÞÁ ÞARF AÐ EFLA MIKIÐ ALLT GJALDEYRISEFTIRLIT HÉR Á LANDI OG KOMA Í VEG FYRIR AÐ GJALDEYRIR SKILI SÉR EKKI TIL LANDSINS.

Þá er mikið talað um það að það verði að hreinsa allt liðið af Alþingi.  Það tel ég að sé alls ekki nóg.   Þegar nýir ráðherrar taka til starfa, þá þarf að hreinsa út úr ráðuneytunum um leið.  Bæði ráðuneytisstjórinn og skrifstofustjórinn eiga að víkja og nýi ráðherrann kemur með ráðuneytisstjóra og skrifstofustjóra með sér.  Með þessari ráðstöfun yrði komið í veg fyrir ráðuneytisstjórar og skrifstofustjórar ráðuneytanna stjórnuðu í raun og veru og svo er náttúrulega ekki gott að fólk fái sigg á ra....... vegna of langrar setu á vissum stólum.


mbl.is Mál Sjó­la­skipa­systkina send aftur í hérað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á EKKERT AÐ BREGÐAST VIÐ ÞVÍ AÐ AUKNING ER Á COVID-19 SMITUM Á LANDAMÆRUNUM??????

En sóttvarnalæknir hvatti LANDSMENN til þess að  gæta varúðar og gætta vel að sóttvörnum en á þessum "upplýsingafundi MINNTIST ENGINN VIÐSTADDRA Á ÞAÐ HVORT YRÐI EKKI GRIPIÐ TIL EINHVERRA RÁÐSTAFANA Á LANDAMÆRUNUM.  Einhverjum fréttamanni datt í hug að spyrja um aðgerðir á landamærunum, vegna "Breska afbrigðisins" af veirunni, en svörin voru nú fremur "loðin" og svo kom einnig fram að það er EKKERT eftirlit með hvar fólk heldur sig eða gerir á milli sýnataka.  Svo er nú annað það er engu líkara en að menn og konur forðist að minnast á að Rússneska bóluefnið sé til og það virðist vera að menn viti EKKERT um þetta efni.  ER ÞAÐ PÓLITÍK, SEM SPILAR ÞARNA INN Í.ÞVÍ EKKI ER  ÞAÐ FAGMENNSKA????????


mbl.is Beint: Upplýsingafundur almannavarna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HVERJIR ERU EIGINLEGA AÐ KOMA TIL LANDSINS Á ÞESSUM TÍMA???????

Það er nokkuð "sláandi" að 14 smit séu greind á landamærunum en svo eru fjögur greind innanlands.  Mér var sagt, að í nóvember hefðu meirihluti þeirra sem greindust með smit á landamærunum verið hælisleitendur.  Getur verið að hælisleitendurnir hafi bara tekið sér pásu um jólin (tekið sér jólafrí) og séu bara farnir að koma aftur?????????


mbl.is Fjögur ný innanlandssmit – 14 á landamærum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ENDALAUST ER HÆGT AÐ FINNA EINHVERJA SEM ERU TILBÚNIR TIL AÐ KOMA MEÐ "FALSKAR KENNINGAR" UM ÁGÆTI KVÓTAKERFISINS OG JAFNVEL AÐ SKREYTA ÞESSAR "KENNINGAR, ÁGISKANIR OG FROÐUSNAKK" MEÐ FRÆÐIMENNSKU.....

Og helst dettur manni í hug að sá sem skrifar þessa grein, hafi verið orðinn eitthvað valtur á stólnum og séð með þessum skrifum sínum leið til þess að styrkja starf sitt (getur verið að uppsagnir séu yfirvofandi í Hádegismóunum?).  Það er stórmerkilegt að lesa þessa grein, því hún á víst að fjalla um það hversu Íslenska kvótakerfið er "SVEIGJANLEGT" en svo les maður greinina og það er ekki einn einasti stafur um það hvað það er sem geri kvótakerfið svona "SVEIGJANLEGT".  Ég hef náttúrulega grun það hvað það er sem á að gera kvótakerfið svona sveigjanlegt en það er framsalið, sem kvótagreifarnir hafa verið að verja með klóm og kjafti allt frá því að það var heimilað, að mig minnir 1993 og gengið svona upp og niður hjá þeim blessuðum, aðallega niður.  En því miður virðast ýmsir sjá sér hag í að verja þetta skrímsli sem kvótakerfið er, enda kannski ekkert einfalt að vera að koma úr dýru námi og einhvern vegin verður fólk að "tryggja framtíð sína" svo þeir geti tryggt framæri sitt og sinna og oft verða menn/konur að tala og skrifa þvert á hug sinn........


mbl.is Sveigjanleiki kvótakerfisins mikill kostur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband