LOKSINS KEMUR FRAM "RAUNHÆFARI" GREINING Á MÁLINU EN HINGAÐ TIL HEFUR VERIÐ.....

Það er bara ósköp einfalt mál AÐ ÞAÐ ER EKKI TIL RAFMAGN Á LANDINU SVO HÆGT SÉ AÐ FARA ÚT Í "ORKUSKIPTI" EINS OG STAÐAN ER Í DAG og það er ekki einu sinni hægt að setja upp nægilegan fjöld hleðslustöðva fyrir þann fjölda rafmagnsbíla sem fyrir er á landinu.  Og ástæðan er sú að ekki er til nægt RAFMAGN á landinu, ástæðan er sú að EKKERT HEFUR VERIÐ VIRKJAÐ HÉR Á LANDI SÍÐUSTU 10 ÁRIN.  Vegna þess að HÁVÆR MINNIHLUTAHÓPUR, sem kennir sig við náttúruvernd, hefur staðið FAST á móti ÖLLUM ÁFORMUM UM VATNSAFLVIRKJANIR.  Og rökin sem er beitt í öllum tilfellum er að ómetanlegir fossar eða gljúfur "hverfi" vegna fyrirhugaðra framkvæmda.  En það sem er enn furðulegra er að  svokallaðir NÁTTÚRUVERNDARSINNAR eru ekki með NEINAR athugasemdir við fyrirhugaða VINDMYLLUGARÐA.  GETUR VERIÐ AÐ "ÞESSIR ELDHEITU NÁTTÚRUVERNDARSINNAR" SÉU MEÐ FJÁRHAGSLEG TENGSL VIÐ ÞÁ FJÁRFESTA SEM ÆTLA SÉR AÐ KOMA UPP VINDMYLLUGÖRÐUM Á ÍSLANDI??????????


mbl.is Spáir seinkun orkuskipta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rúnar Már Bragason

Þessi hugmynd um orkuskipti á 17 árum er frekar kjánaleg. Veldur of mikilli spennu í hagkerfinu og þá væri fróðlegt að sjá vaxtastig seðlabankans. Landsnet vill auðvitað vindmylluorkuver (kalla þetta réttu nafni) því þá græða þeir meira á kostnað neytenda en ekki eigenda. Mega þó eiga það að þetta er rétt greining hjá þeim.

Rúnar Már Bragason, 24.8.2023 kl. 10:36

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þakka þér fyrir Rúnar greinargóða athugasemd, sem virðist vera mjög vel ígrunduð.  Við vitum það báðir að raforkuframleiðsla úr vindorku er mun kostnaðarsamari heldur en rafmagn framleitt með vatnsorku og verður bara til þess að  rafmagnsverð kemur til með að HÆKKA mikið, verði niðurstaðan sú að vindorka verði ofaná............

Jóhann Elíasson, 24.8.2023 kl. 11:43

3 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Af hverju er alltaf talað um vindmyllugarða? Getur ekki verið hagstætt að setja upp nokkrar myllur þar sem rafmagn vantar og útsýnið raskast ekki? 

Sigurður I B Guðmundsson, 24.8.2023 kl. 21:52

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Svei mér þá ég hef bara ekki hugmynd um það Sigurður.  Ég veit af hverju rófugarður heitir rófugarður en ég veit ekki til að hægt sé að rækta vindmyllur svo ég get ekki annað en sagt PASS.......

Jóhann Elíasson, 24.8.2023 kl. 22:16

5 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Ég líka!

Sigurður I B Guðmundsson, 25.8.2023 kl. 09:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband