AÐ HVAÐA LEYTI GAGNAST ÞESSI VIÐSKIPTI LANDINU????????

Að selja mikilvæga innviði út úr landinu, getur ekki verið að gagnist landi og þjóð mikið og verður ekki annað séð en að áhyggjur Samkeppniseftirlitsins (SKE) séu fullkomlega eðlilegar og ef eitthvað er þá eru þær full varfærnislega orðaða í andmælaskjali SKE.  Af þessu verður ekki annað séð en að Orri Hauksson ætli að leggjast "hundflatur" fyrir Frökkunum og gera ALLT sem hann mögulega getur til þess að af þessum viðskiptum geti orðið, jafnvel þótt hann þurfi allt að því að gefa þeim fyrirtækið...........


mbl.is Viðbrögð Samkeppniseftirlitsins komu á óvart
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HVENÆR Á EIGINLEGA AÐ FARA AÐ LEIÐRÉTTA ÞESSA VITLEYSU, SEM KVÓTAKERIÐ ER????

Kvótakerfið hefur verið tóm "steypa" alveg frá upphafi og með tímanum hefur verið bætt í þvæluna frekar en hitt og ber þá sérstaklega að  nefna að leift var að VEÐSETJA kvóta og svo kom stóra "bomban" en þá kom framsalsheimildin.  Ég hef leitað í nokkrum lagabálkum og ÉG HEF HVERGI FUNDIÐ AÐ AÐ SÉ NOKKUR HEIMILD TIL AÐ "SELJA" KVÓTA SEM HEFUR VERIÐ ÚTHLUTAÐ.  Enda sér það hver maður að menn geta ekki selt það sem þeir eiga ekki og það er náttúrlega með öllu fáránlegt að það megi "veðsetja" eitthvað sem menn eiga ekki.  KVÓTI ER EKKI ÞINGLÝST EIGN NEINS AÐILA.  Mér er það STÓRLEGA TIL EFS að ég kæmist upp með að VEÐSETJA leiguíbúðina sem ég er í núna og hvað þá að SELJA hana.  Samkvæmt grein sem prófessor Þórólfur Matthíasson skrifaði í Fréttablaðið þann 16.júlí síðastliðinn, var varanlegt þorskígildiskíló selt á kr. 2.556 frá Vísi í Grindavík til Síldarvinnslunnar á Neskaupsstað FYRIR "SAMEIGINLEGA EIGN ÞJÓÐARINNAR"...............


mbl.is Að óbreyttu með 14% af aflaheimildum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

KANNSKI OPNAST ÞÁ MÖGULEIKI TIL AÐ ÞESSIR INNVIÐIR VERÐI Í EIGU ÍSLENDINGA???

Ég neita að trúa því að stjórnendur Símans ætli að leggjast "hundflatir" fyrir fætur Frakkanna og gera hvað sem er til að fá þá til að kaupa???????????


mbl.is Ardian sættir sig ekki við kaupsamninginn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ALVÖRU MANNESKJA OG TIL MIKILLAR FYRIRMYNDAR.........

Þetta er líka manneskja, sem sér það að með því að að tala og skilja tungumálið, verður hún mun VIRKARI þegn í þjóðfélaginu og getur fylgst með því sem er í gangi, ásamt því að nálgast öll sín réttindi og skyldur og það sem mest er um vert HÚN VERUR EKKI ÖÐRUM HÁÐ UM ALLA HLUTI.  Hún er góð fyrirmynd fyrir aðra sem koma til landsins til dvalar hvort sem er til lengri eða skemmri tíma........


mbl.is Með orðabók og talar íslensku við sjúklingana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

FORSÆTISRÁÐHERRA KEMUR TIL MEÐ AÐ HAFA NÆGT EFNI Í GLÆPASAGNABÓKAFLOKK UPP Á 20 BINDI....

Það er kannski ekki seinna að vænna fyrir hana að fara að leggja drög að starfslokum sínum, kannski er hún farin að sjá einhverja bresti í stjórnarsamstarfinu og vill hafa vaðið fyrir neðan sig, enda getur enginn, með góðri samvisku, brigslað henni um að skorta vit.  Og ekki ætti að verða skortur á "raunverulegum" efnivið en reikna má með að eitthvað af þessu efni sé bundið TRÚNAÐI en hún ætti ekki að vera í neinum vandræðum með að komast framhjá því, hingað til hafa lög og reglur ekki verið að þvælast fyrir henni og ættu ekki að vera nein fyrirstaða seinna meir heldur...........


ERUM VIÐ KANNSKI AÐ HORFA FRAMHJÁ "STÓRA SAMHENGINU"???????

Núna erum við að fá að  sjá alvöru málsins, talsmenn World Economic Forum (WEF) hafa lengi talað um það að mennirnir á jörðinni séu orðnir OF FJÖLMENNIR og það VERÐI AÐ FÆKKA ÞEIM.  En hvernig á framkvæmdin á þessu að verða?  Ef þetta er skoðað þá segja þeir að ÞAÐ VERÐI AÐ FÆKKA SVO MIKIÐ Í MANNKYNINU  AÐ "NÁTTÚRULEG"FÆKKUN DUGI EKKI TIL OG HVAÐ ÞÁ?  Klaus Schwab segir í bók sinni "COVIVID-19:THE GREAT RESET" að COVID hafi komið eins og "himnasending" og boðið upp á alveg gríðarleg tækifæri, en betur má ef duga skal:  Nú berast fréttir af því að 98 stórum matvælaverksmiðjum í Bandaríkjunum hafi verið lokað, sumir halda því fram að stríðinu í Ukrainu hafi verið "komið af stað" til að stöðva matvælaflutning til þróunarríkjanna, Hollensk stjórnvöld stefna að því að MINNKA MATVÆLAFRAMLEIÐSLU HOLLANDS UM AÐ MINNSTA KOSTI 30% og ýmislegt fleira er að koma í ljós.  Hvað er að gerast hérna á Íslandi?  JÚ VIÐ HÖFUM VERIÐ AÐ MINNKA HÉR FISKVEIÐAR Í TÆP 40 ÁR OG ENGINN SEGIR NOKKURN SKAPAÐAN HLUT.  Í rauninni veit enginn um það hversu lengi þessi samtök (WEF) hafa starfað.  Hingað til hefur verið hlegið að þessum mönnum talað um að þetta séu bara ríkir sérvitringar en núna eru menn að "VAKNA" upp við það að þessum mönnum var fúlasta alvara allan tímann og núna eru menn að átta sig á því að það á að FÆKKA mmannnkyninnu MEÐ ÞVÍ AÐ LÁTA ÞAÐ DREPAST ÚR HUNGRI.....


SKYLDI STANDA TIL AÐ GERA EITTHVAÐ VARÐANDI "KVÓTAÞAKIÐ"??????

Og alltaf verður SAMÞJÖPPUNIN í sjávarútvegnum meiri og meiri og um leið verða færri og færri í þessari grein.  Óhjákvæmilega verða þá fleiri sem verða margir "óþægilega" nálægt kvótaþakinu eða FARA jafnvel yfir það (það er náttúrulega mjög óþægilegt að þurfa alltaf að standa "kengboginn" vegna þess að það er of lágt til lofts).  En þetta hefur áhrif á marga á fleiri en einn aðila þó svo að Síldarvinnslan sé "kaupandi" að Vísi í Grindavík, þá er Samherji stærsti eigandi að Síldarvinnslunni og þó að sú eignaraðild sé ekki tekin með þá er Samherji ALVEG VIÐ KVÓTAÞAKIÐ.  Þannig að spurningin er:SAMÞYKKIR SAMKEPPNISEFTIRLITIРÞESSI VIÐSKIPTI????????


mbl.is Síldarvinnslan rýkur upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HVERNIG STENDUR EIGINLEG Á ÞVÍ AÐ ÍSLENSKIR FJÖLMIÐLAR "LÁTA" ETJA SÉR ÚT AÐ TAKA ÞÁTT Í ÞESSUM FJÖLMIÐLASIRKUS?????

Það er einmitt svona "tilfinningavella" sem þessi hryðjuverkasamtök lifa á og heldur þeim gangandi, ef þeir fá ekki umfjöllun og eru bara látnir afskiptalausir þá "lognast þeir bara útaf og láta sigg bara hverfa með tímanum.  Þessa leið fóru vinir okkar og frændur Færeyingar fyrir nokkrum áarum, með góðm árangi fyrir nokkrum árum.  Reyndar  gengu þeir aðeins lengra og gerðu stólpagrín að þessum kálfum í Sea Sheperd (ég bið kálfana afsökunar á þessari samlíkingu).  Það er alveg á tæru að við getum lært mikið af Færeyingum, á sínum tíma skrifaði Jens Guð mörg afspyrnu skemmtileg blogg um þessi málefni: Jens Guð - jensgud.blog.is (ath að þessi "linkur" er eingöngu yfir á bloggið hjá Jens Guð, ekki á viðkomandi greinar).....


mbl.is „Í andlegu áfalli“ yfir hvalveiðunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

EN SAMT SEM ÁÐUR HÆKKAR VERÐLAG EINS OG ENGINN SÉ MORGUNDAGURINN???

Það getur ekki verið annað en eitthvað mikið sé að þegar svoleiðis lagað  er?  Nú hefur eldsneyti verið að LÆKKA á heimsmarkaði undanfarið en samt sem áður bólar ekkert á verðlækkunum hér á landi.  Venjan hér hefur verið sú að um leið og verður hækkun á heimsmarkaðsverði, þá hækkar verð á eldsneyti hér og þá helst daginn áður og alltaf hittist þannig á að þegar heimsmarkaðsverð á eldsneyti hækkar þá er ekki til einn einasti dropi af eldsneytisbirgðum í landinu en þegar heimsmarkaðsverðið lækkar, þá eru til alveg heimspekilegt magn af eldsneytisbirgðum í landinu að það tekur marga mánuði að vinna birgðirnar niður.  Og eitthvað svipað virðist vera í gangi varðandi GENGIÐ, þegar gengislækkun verður þá hækkar almennt vöruverð í landinu með það sama en þegar gengisstyrking verður, gengisstyrkingin virðist aldrei hafa nein áhrif á vöruverð..............


mbl.is Krónan að styrkjast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

FJÖLMIÐLARNIR HALDA "LÍFINU" Í ÞESSUM HRYÐJUVERKASAMTÖKUM....

Með því að vera að fjalla um þau.  Síðan hvenær er það þeirra hlutverk að "fylgjast" með hvalveiðum á Íslandi og hver hefur eiginlega beðið þau um það?  Eru það "samfélagslega nauðsynlegar fréttir" að landsmenn geti fylgst með þessu liði og í hverra þágu eru þessar "fréttir"??????????


mbl.is Sea Shepherd fylgist með hvalveiðunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

MILLIVERÐLAGNING??????

Nú upp á síðkastið hafa verið MJÖG miklar verðhækkanir á sjávarafurðum (hjá okkur almenningi heitir þetta fiskur og afurðir úr fiski).  Kunningi minn er á frystitogara og hann kom að máli við mig og hann hafði fréttir af því að þorskur, sem fór í "fish and chips" í Bretlandi, hafði hækkað um rúmlega 98% en hann hafði ekki séð neina hækkun á sínum launum síðustu mánuði.  Hann sýndi mér nokkra síðustu launaseðla máli sínu til stuðnings.  Ég veit ekki betur en að fiskur af Frystitogurum hér á landi fari eða réttara sagt eigi að fara beint á markað og því verð hækkun á launum sjómanna þegar hækkun á fiski verður á markaði.  Eru Íslendingar kannski hættir að selja á markaði þar sem verð er hátt???????? 


ENN EIN STAÐFESTINGIN Á KOLVITLAUSRI "FISKVEIÐIRÁÐGJÖF" HAFRÓ....

Það koma fréttir alls staðar af landinu að allt sé sneisafullt af fiski en samt er NIÐURSKURÐUR í fiskveiðiráðgjöf HAFRÓ ár eftir ár.  Ég hef nokkuð oft, skrifað hérna á bloggið um hinar "vísindalegu" aðferðir HAFRÓ og hversu marktækar ég tel að þær séu, nú hef ég lesið blaðagreinar eftir skipstjóra sem taka undir með mér og hefur mér fundist að "undiraldan" í þessum efum sé að þyngjast verulega í þessum efnum.  Ég og margir aðrir hafa löngum sett fram þá kröfu að handfæraveiðar smábáta verði gefnar frjálsar og það strax.  Þá koma ráðamenn (síðast Fjármálaráðherra) og segja: „af hverjum á þá að TAKA þann kvóta?“ Svarið er ÞAÐ ÞARF EKKI AÐ TAKA ÞANN KVÓTA AF NEINUM.  Ég hef áður talað um það að „stofnstærðarmælingarnar“ hjá HAFRÓ eru ekki nein MERKILEG VÍSINDI og engin einasta ástæða til að fara að „veiðiráðgjöf“ þeirrar stofnunar upp á kíló.  Veiðigeta þeirra sem stunda handfæraveiðar er mjög sennilega ekki meiri en um það bil 20.000 tonn á ári án þess að nokkrar takmarkanir séu settar þar á (takmarkanir þarf reyndar að setja á fjölda báta stærð þeirra og annað).  En veðráttan og fleira setur á takmarkanir.  Svo þarf að taka af margar takmarkanir sem hafa verið settar á vega strandveiða til dæmis þetta veiðisvæðakjaftæði, annað hvort eru menn á handfæraveiðum eða ekki það skiptir ekki nokkru máli á hvaða „svæði“ þeir eru.  Að þeir megi ekki veiða nema eitthvað ákveðið magn í hverri veiðiferð er alveg FÁRÁNLEGT, suma daga veiðist vel og svo er ekkert að fá aðra daga, þannig er það bara.  Þá er eitt mál, ÞAÐ AÐ AÐEINS MEGI VERA EINN MAÐUR Á ÞESSUM STRANDVEIÐIBÁTUM ÆTTI HREINLEGA AÐ BANNA, ef eitthvað kemur uppá þar sem einungis er einn maður á bát getur sá maður ENGA BJÖRG SÉR VEITT, ÞETTA ER EINFALDLEGA ÖRYGGISATRIÐI.


mbl.is Þorskafli smábáta 37% meiri en í fyrra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

STÓR DAGUR FRAMUNDAN HJÁ CARLOS SAINZ Á MORGUN............

Hann verður í fyrsta sinn á ferlinum á ráspól og ekki nóg með það þá verður keppnin á morgun hans 150 keppni í Formúlu 1 einnig gæti hann unnið sinn fyrsta sigur í Formúlu 1.  En keppnin sjálf er eftir en vissulega lýtur allt vel út fyrir hann núna.....


ER VERIÐ AÐ VINNA AÐ ÞVÍ AÐ KOMA UPP EINRÆÐISSTJÓRN HÉR Á LANDI?

Allt sýnist mér stefna í einræðisátt hér á landi, sem dæmi um þetta má nefna að Forsætisráðherra landsins virðist vera að taka að sér að vera nokkurs konar "yfirráðherra" landsins en hún virðist halda að í því liggi skyldur Forsætisráðherra, en svo getur verið að hún hreinlega sætti sig ekki við núverandi hlutverk Forsætisráðherra og vilji bara ráða meiru en gert er ráð fyrir í stjórnskipan landsins?  Sérstaklega virðis það vera henni hugleikið að  taka framfyrir hendurnar á Dómsmálaráðherra landsins og á það ekki eingöngu  við núverandi Dómsmálaráðherra heldur hafa allir Dómsmálaráðherra, sem hafa verið í hennar stjórnartíð lent í þessu, nema kannski Sigríður Andersen sem ekki virðist hafa sætt sig við ofríki Forsætisráðherra kannski er það hin "raunverulega" ástæða fyrir brotthvarfi Sigríðar úr dómsmálráðuneytinu á sínum tíma????????????????


EKKI SPURNING AÐ HÚN ER FRAMBÆRILEGASTI "KANDÍDAT" FLOKKSINS....

Það er ekki nokkur spurning að Kristrún Frostadóttir er EINI "kandídatinn", sem á eitthvað erindi sem formaður flokksins.  Hún er bráðgáfuð (en samt ekki gáfaðri en það að hún er í Samfylkingunni) og svo er hún alveg bráðmælsk (það veður enginn yfir hana á skítugum skónum).......


mbl.is Nýtir sumarið í að „íhuga alvarlega“ formannsframboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HALDA ÞESSIR "SNILLINGAR" Í PENINGASTEFNUNEFND AÐ HÆKKUN VAXTA Á ÍSLANDI SLÁI Á ALHEIMSVERÐBÓLGU????

Samband stýrivaxta og verðbólgu er þar að auki mjög ofmetið og kannski er tími til kominn að Seðlabanki Íslands fari að "dusta rykið" af öðrum "verkfærum" í baráttu sinni við verðbólguna.  Það dugar engan veginn að horfa bara á að verbólga sé að hækka og þá EIGI bara að hækka "stýrivextina" án þess að skoða nokkuð hvers eðlis þessi verðbólga sé.........


mbl.is Spá um hagvöxt vænkast en verðbólguhorfur versna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

OG SVONA LAGAÐ ER "GÓÐA FÓLKIÐ" ALVEG ÁFJÁÐ Í AÐ FÁ TIL ÍSLANDS

Og hver veit nema að svona hryðjuverkamaður sé þegar kominn til landsins?  Það er ekki langt síðan að lögreglan fann SÝRU uppi á Ásbrú (flestir sem vilja vita það, vita til hvers átti að nota hana).  Okkur er með öllu fyrirmunað að læra af reynslu annarra þjóða í þessum málum sem og mörgum öðrum......


mbl.is „Í dag erum við í áfalli“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

EKKI ER ÞETTA MJÖG TRÚVERÐUGT HJÁ HONUM...........

HAFRÓ hefur legið makindalega í sínum "FÍLABEINSTURNI" í tæp fjörutíu ár og ekki viljað tala við nokkurn mann þrátt fyrir mikla gagnrýni á stofnunina og vinnubrögð hennar, meðal annars frá fyrrum starfsmanni stofnunarinnar Jóni Kristjánssyni (sem var rekinn fyrir gagnrýnina og ekki nóg með það heldur lagður í einelti og reynt að koma í veg fyrir að maðurinn gæti séð sér og sínum farborða), væri einhver vitglóra kominn í menn hjá HAFRÓ ættu þeir að biða Jón Kristjánsson afsökunar á framkomunni við hann undanfarna áratugi og greiða honum háar bætur vegna þess skaða sem stofnunin hefur valdið honum.  En  kannski hefur flutningur stofnunarinnar til HAFNARFJARÐAR, gert það að verkum að þeir hafi fengið einverja smá vitglóru í hausinn?????????


mbl.is Vill ræða við sjómenn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

STÓRGOTT INNLEGG Í UMRÆÐUNA - MENN SEM ERU Í TENGSLUM VIÐ RAUNVERULEIKANN

Var að enda við að lesa stórgóða grein eftir þá Björn Jónasson og Ágúst Ómarsson, báðir eru þeir farsælir og góðir skipstjórar og njóta þeir báðir mikillar virðinga og eru miklir fagmenn á sínu sviði.  Í þessari grein benda þeir á margt sem hefur farið úrskeiðis í "fiskveiðiráðgjöf" HAFRÓ undanfarin ár (reyndar finnst mér þeir vera full kurteisir í gagnrýni sinni á HAFRÓ því ég hef aldrei séð að það væri nein heil brú í þessum "vísindalegu rannsóknum" þeirra alveg frá upphafi).  Það var alveg ljóst, við lestur greinarinnar, að þar fara menn með mikla þekkingu og maður les það svona á milli línanna að nú hafi þeim algjörlega ofboðið vitleysan sem er í gangi og sérstaklega algjört þekkingarleysi ráðherra á málunum, sem lýsir sér í því að það á bara að fara í einu og öllu eftir þeirri vitleysu sem er borin á borðið.  Ég vil þakka þessum mönnum fyrir þann kjark sem þeir sýna með því að skrifa þessa frábæru grein og væri þess óskandi að fleiri fylgi í fótspor þeirra, því öðruvísi verða engar breytingar........


mbl.is Ráðgjöf Hafró sögð „algjört rugl“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

LOTSLAGSÞVÆLAN Í ÖLLU SÍNU VELDI.................

Fyrir það fyrsta þá er þetta lið fast í þeim hjólförum að loftslagsbreytingarnar séu af mannavöldum.  Í þeim "drullupolli" eru VG, Samfylkingin og krakkaræflar, sem þessir aular eru að verða búnir að hræða líftóruna að mestu leiti úr, með því að telja þeim trú um að heimsendir sé í nánd.   Vísindin á bak við þessa vitleysu eru ekki meiri en það að þetta lið beitir fyrir sig „heilaþvegnum táningsræfli, sem er búin að læra „loftslagsmöntruna“ utanbókar. VITA MENN EKKI AF FÆRSLU SEGULPÓLSINS?  ÞETTA ÞÝÐIR Á MANNAMÁLI AÐ Á ÞESSUM TÍMUM STANDA YFIR "PÓLSKIPTI".  Nú er segulpóllinn staddur í norður-Síberíu og vísindamenn NASA telja að hann endi í Indlandshafi.  Vegna þess að segulpóllinn, var áður en "flakkið" byrjaði, staddur norður af Kanada hefur HLÝNAÐ umtalsvert á norðurslóðum, til dæmis bráðnar Grænlandsjökull mjög hratt og hlýindametin í Kanada eru gott vitni um þetta en annars staðar hefur kólnað mjög mikið og sem dæmi má nefna að jöklar eru byrjaðir að myndast í norðurhluta Síberíu, þar sem segulpóllinn er staddur þessa stundina. Þegar og ef segulpóllin endar í Indlandshafi, verða ýmis þéttbýl svæði í Asíu óbyggileg og mikill flutningur á fólki verður frá þessum svæðum.  HVERNIG TEKUR HEIMSBYGGÐIN Á ÞEIM MÁLUM?  Nú þegar stjórnmálamenn eru búnir að láta ljúga sig fulla um loftslagsbreytingar af mannavöldum og verða búnir að eyða milljörðum í að MOKA OFAN Í SKURÐI og nú ætlar stjórnmálaelítan að ráðast að 6% útblæstri okkar Íslendinga og BANNA innflutning á bílum, sem ganga fyrir JARÐEFNAELDSNEYTI.  Hvernig ætli ástandið hefði orðið á norðurlandi í óveðrinu í desember árið 2020 ef stór hluti íbúanna hefði verið búinn að skipta yfir í rafmagnsbíla?   Þessar breytingar og öfgar í veðurfarinu má rekja beint til þessara breytinga á segulpólnum. "LOFTSLAGSBREYTINGAR AF MANNAVÖLDUM" ERU EKKERT ANNAÐ EN "BIG BUSINESS".  En auðvitað afneita þessir aðilar að hlýnun loftslags eigi sér aðrar skýringar en að vera af mannavöldum, svo fastir eru þeir í þessum "loftslagstrúarbrögðum" sínum.  Það er kominn tími til að þetta lið fari að taka hausinn úr ra........ á sér og fara aðeins að sjá hlutina frá öðru sjónarhorni en tommu rörsýninni, sem hefur háð því fram til þessa.  Það eru til margar bækur sem sýna fram á að þetta með „LOFTLAGSHLÝNUN AF MANNAVÖLDUM“  er ekkert annað en GETGÁTA og ef við tökum bók eftir dr. Helga Björnsson jöklafræðings, þessi bók heitir JÖKLAR Á ÍSLANDI og hún segir svo ekki verður um villst að hitastigið á jörðinni hefur HÆKKAÐ og LÆKKAÐ í gegnum aldirnar og sér ekkert fyrir endann á því.  Til dæmis var VATNAJÖKULL tvískiptur og fremur lítill og ræfilslegur á LANDNÁMSÖLD og fékk nafnið KLOFAJÖKULL.  Það er óskaplega einfalt, ÞAÐ ERU ENGIN VÍSINDI Á BAK VIÐ ÞESSA MÝTU UM LOFTSLAGSHLÝNUNINA OG „VÍSINDAMENN“ ERU ALLS EKKI SAMMÁLA Í ÞESSUM MÁLUM  EINS OG ER Í FLESTUM MÁLUM.  SVO KOMA STJÓRNMÁLAMENN FRAM MEÐ HRÆÐSLUÁRÓÐUR Í ÞESSUM MÁLEFNUM OG GERA AÐ AÐALMÁLINU Í KOSNINGUNUM SEM ERU FRAMUNDAN,  TIL ÞESS AÐ KOMAST HJÁ ÞVÍ AÐ RÆÐA EFNI SEM ERU AÐKALLANDI OG STJÓRNMÁLAMENN ÆTTU AÐ RÆÐA......


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband