RUGLUDALLAR

Svo kemur Árni Finnsson í sjónvarpinu og getur ekki séð að það geti verið "hagnaður" af hvalveiðum þegar ekkert af hvalkjötinu frá því í fyrra sé selt.  Kannski þessi ruglukollur geti sagt hvernig í ósköpunum sé hægt að selja kjötið þegar svona vitleysingar gera sig alls staðar gildandi og eru með lygar og bulláróður um alla heimsbyggðina?  Svo verða þessir "Umhverfis - Ayjatollar" alveg kjaftbit á því að það sé gripið til aðgerða gagnvart ruglinu og bullinu í þeim.
mbl.is Grænfriðungar handteknir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Þar kom að því, að við yrðum sammála!

Axel Jóhann Hallgrímsson, 2.4.2010 kl. 13:18

2 Smámynd: ThoR-E

Hvalurinn er bara ein af þeim tegundum sem við íslendingar veiðum hér í kringum landið. Þær hvalategundir sem við veiðum eru ekki í útrýmingarhættu. Þetta er ein af auðlindum okkar.

Ótrúlegt að hafa svona rugludalla gólandi og gaggandi yfir fólki sem er að vinna vinnuna sína.

Hlekkja sig við skip ?? jahérna.

Afhverju einbeita þessir einstaklingar sér ekki af dýrum sem eru í raunverulegri útrýmingarhættu .. eins og til dæmis vissar tígrisdýra tegundir í Afríku og víðar. Bara dæmi.

ThoR-E, 2.4.2010 kl. 13:30

3 identicon

Hvar er hafnarverndin og siglingaverndin spyr ég.  Íslenskar hafnir verða að kosta til tugum þúsunda og stærri hafnir jafnvel milljónum króna til þess að eitthvað þessu líkt gerist ekki.  Og ef við stöndum okkur ekki missir viðkomandi höfn jafnvel leyfi til að taka við flutninga- og eða farþegaskipum.  Það á að spyrða þessa fugla og hengja þá til þerris á hinu nýja fjalli, "Fimmhyrningi", öðrum til varnaðar.

Gunnar (IP-tala skráð) 2.4.2010 kl. 13:45

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já, sona lagað gerir ekki boð á undan sé Axel.

Jóhann Elíasson, 2.4.2010 kl. 13:46

5 identicon

Ég segi eins og Axel. Ég er ekki oft sammála þér Jóhann, en er það núna.

Svavar Bjarnason (IP-tala skráð) 2.4.2010 kl. 14:31

6 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Já þetta er kúnstugt allt saman,  Hollendingar ala hænsnfugla sem aldrei sjá dagsins ljós og svín sem aldrei sjá græna náttúru en verða svo vitlausir ef við drepum hval sem hefur borðað nægu sína að þörfum og lifað lífinu eins og náttúran ætlast til.  

Hrólfur Þ Hraundal, 2.4.2010 kl. 15:44

7 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Maður segir bara ekki eins og þessi tveir,við erum oftast sammála Jóhann,og aldrei meira en um hvalveiðar og sölu afurða þar/Kveðja og gleðilega hátíð/Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 2.4.2010 kl. 17:14

8 identicon

Það er engin sem segir að þetta séu hollendingar. Þetta eru vinstri sinnaðir auðnuleysingjar sem hafa aldrei unnið heiðarlega vinnu , eru á sósíal í heimalandinu og eru foreldrum sínum til háborinnar skammar og öllum til ama. Basta.

V. Jóhannsson (IP-tala skráð) 2.4.2010 kl. 18:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband