EKKI VORU ÞEIR FÉLAGAR TRAUSTVEKJANDI Í KASTLJÓSINU Í KVÖLD...

Þeir höfðu ekki nokkra hugmynd um hvað þeir ætluðu að gera á kjörtímabilinu nema Bezti flokkurinn stendur fast á því að það verði ísbjörn í húsdýragarðinum, samt eru þeir búnir að vera að tala saman í viku.  Og þegar Þórhallur spurði Jón Gnarr að því hvernig stæði á því að hann hefði ekki talað við aðra, var frekar fátt um svör (hann vissi bara hreinlega ekki hvernig hann átti að svara) og þá fór hann bara að tala um TRAUST en það fékkst aldrei á hreint hvað var átt við.  Margt bentir til að þetta verði Reykvíkingum ansi dýrt "grín", sem menn verða lengi að býta úr nálinni með.
mbl.is „Litli“ stóri bróðir í Fellunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorvaldur Guðmundsson

Tad mun nu samt enginn hvergi i veroldinni toppa sjalfstædisFLokkinn i dyru grini. Var tad innantomu kosningaloford fjorflokksinns sem ter finnst vanta? Er ekki best ad leyfa tessu folki ad hefja størf og ganryna tau svo frekar en ad dæma tau fyrirfram. En tu Johann ert natturulega okryndur sleggjudomari bloggheima.

Þorvaldur Guðmundsson, 4.6.2010 kl. 21:26

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þú getur horft á Kastljósið í tölvunni þinni.  Er eiginlega ekki lágmark að menn viti eitthvað hvað þeir ætla að gera næstu fjögur árin, eða finnst þér það engu máli skipta????  Það er ekki verið að dæma fólk fyrirfram en það sem ég sá til þeirra í kvöld vekur ekki upp bjartsýni, þau hafa þegar haft viku og svo kom þetta framboð ekki fram daginn fyrir kosningar þannig að þetta fólk hefur nú kynnt sér borgarmálin eða það vona ég alla vega.

Jóhann Elíasson, 4.6.2010 kl. 21:36

3 Smámynd: Stjörnupenni

Reyndar sögðust þeir aldrei "ekki vita" hvað þeir ætli að gera.

Þeir sögðust bara ekki vera tilbúnir til að vera með yfirlýsingar um það strax, enda tekur stjórnin ekki við fyrr en 15. júní. 

Stjörnupenni, 4.6.2010 kl. 22:06

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Hefur þú trú á að þeir viti eitthvað meira 15 júní, Stjörnupenni??????

Jóhann Elíasson, 4.6.2010 kl. 22:13

5 Smámynd: Árni Gunnarsson

Ekki get ég neitað því að skelfing fannst mér hann Dagur eitthvað flatneskjulegur þarna í samanburði við væntanlegan borgarstjóra.

Það hefur ekki farið hátt en er fullyrt af nákunnugum að Jón Gnarr hyggist bjóða Hönnu Birnu að stjórna unglingavinnunni í borginni og Sóley Tómasdóttir verð fengin til að líta eftir henni.

Auðvitað tek ég ekki ábyrgð á þessu. En ég styð það að Hanna Birna fái eitthvert stjórnunarstarf minnugur þess að sjálfstæðismenn fengu fjandi mörg atkvæði hér í borginni undir traustri forystu hennar.

Árni Gunnarsson, 4.6.2010 kl. 22:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband