SIGURINN VAR VISSULEGA GÓÐUR................................

Og langþráður, en ég er þess fullviss að sigrarnir verða fleiri verði HELENA ÓLAFSDÓTTIR ráðin næsti þjálfari karlaliðsins í knattspyrnu.  Því ekki????  Það er jú karl sem þjálfar kvennaliðið í knattspyrnu og hefur hann gert MJÖGgóða hluti.  Það hefur ekki verið reynt að fara þessa leið Helena Ólafsdóttir hefur verið mjög farsæll þjálfari og er ekki kominn tími til að reyna eitthvað nýtt með þetta handónýta lið okkar sem mátti þakka fyrir sigur í kvöld ef ekki hefði verið fyrir frábæran leik Hannesar í markinu hefði þessu leikur farið í jafntefli og jafnvel tap.
mbl.is Langþráður sigur í Laugardalnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta er alveg stórkostlegur árangur!!!  Núna erum við með jafn mörg stig og Færeyjar, Luxemburg og ekki síst Lichtenstein í sínum riðlum.  Mínir menn að sína sig sko.  Ekki skil ég þessa krítík á Óla, ég meina hér erum við að VINNA leik og það gegn ATVINNUMÖNNUM frá útlöndum.  Næst tökum við San Marínó í bakaríið, allavega á heimavelli.  Verst að við fáum ekki að spila við þá í neinni keppni því þeir eru í sama flokki og Ísland.  En við gætum boðið þeim í heimsókn og farið með þá í hestaferð fyrir leikinn  ;-)

Jón (IP-tala skráð) 6.9.2011 kl. 21:14

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þetta er góð hugmynd með hestaferðina og eykur möguleika okkar manna margfalt...........  

Jóhann Elíasson, 6.9.2011 kl. 21:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband