NÚ ERU GRÍNARARNIR BÚNIR AÐ KLÚÐRA FJÁRMÁLUNUM LÍKA.............

Djókið ætlar að verða Reykvíkingum DÝRT.  Auðvitað reyna þessir trúðar að kjafta sig frá því með því að blanda alveg saman fjármálum borgarinnar og Orkuveitunnar....................
mbl.is Fjármál Reykjavíkur skoðuð nánar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég næ því ekki hvernig í ósköpunum þú getir kennt Jóni Gnarri um að klúðra fjármálum borgarinnar þar sem þeir félagar ásamt Degi hafa t.d. endurskipulagt orkuveitu rvk og komið henni í betri farveg og lækkað skuldir sem söfnuðust upp fyrir hrun.  Þeir eru að gera margt í dag sem er mjög umdeilt en eru þó að ná að vinna á fjárhagshalla rvk borgar.

Þetta er svipað fáránlegt og að kenna vinstri grænum í HFJ um skuldir Hafnarfjarðarbæjar þar sem þeir fóru inn í bæjarstjórn fyrir 2 árum. Klárlega þeim að kenna, er það ekki annars?

Þær aðgerðir sem hann hefur farið í , t.d. með uppsögnum í orkuveitinni, voru mikið gagnrýndar en þetta var gert útfrá hópi sérfræðinga sem fengu það verkefni að endurskipuleggja hana á sem haghvæmasta hátt.  Hann er einn af fáum sem reynir að fá sérfræðilegt álit á aðgerðir frekar en að taka ákvörðun útfrá pólitískri skoðun.  

 Ég sé heldur ekki í fljótu bragði hvaða borgarstjóri hefur staðið sig betur en Jón undanfarin ár.  

Fannar (IP-tala skráð) 13.7.2012 kl. 22:03

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Fannar, það er nokkuð greinilegt, út frá skrifum þínum, að það hefur ekki nokkra þýðingu að útskýra fyrir þer hversu illa Jón Gnarr og félagar hafa haldið á málum.  Að reyna nokkkuð að útskýra fyrir staurblindum fylgismanni, er eins og að tala við tóma tunnu, svo ég sleppi því alveg og leyfi þér bara að lifa rólegum áfram í sjálfsblekkingu og vitleysu.

Jóhann Elíasson, 14.7.2012 kl. 01:58

3 Smámynd: Óskar

Þessi frétt segir í raun ekki neitt.   Reykjavík stendur mjög vel í samanburði við nágrannasveitarfélögin sem stjórnað hefur verið af sjálfstæðismönnum í áratugi og eru á hausnum, samanber Reykjanebæ.

Sjálfstæðisflokknum tókst næstum því að gera útaf við Orkuveituna en nú hefur núverandi meirihluta í borginni tekist að bjarga fyrirtækinu.  Það er bara þannig að þar sem sjálfstæðisflokkurinn fær einhver völd, þar virðist allt hrynja og það lendir á öðrum að taka til.  Þannig er það líka í Reykjavík.

Óskar, 14.7.2012 kl. 09:28

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Óskar, mesti vöxturinn á skuldum Orkuveitunnar var í tíð R-listans og mestu skuldirnar í Hafnarfirði komu til þegar LANDRÁÐAFYLKINGIN var í meirihluta.  Rétt skal vera rétt, ekki eitthvað "kommarugl" út í loftið sem engin innistæða er fyrir.

Jóhann Elíasson, 14.7.2012 kl. 10:02

5 identicon

Það er hálf kjánalegt að þú skulir kalla mig svokallaða risaeðlu þar sem ég hef séð á  skrifum þíinum hversu mikill steingervingur þú ert.  Ég er sannfærður um að það væri ekki hægt að ræða við þig um þetta þar sem þú ert fastur á þinni skoðun og allt hitt er rangt, en þitt rétt. Þú segir að ég sé staurblindur fylgismaður þá vil ég benda þér á að ég kaus hann ekki síðast því mér þótti þetta vitleysa en það er ekki tekið af honum að hann er ekkert verri heldur en forverar hans.

Ef þú ert með einhver gild og góð rök fyrir því að hann sé verri en hver annar þá endilega deildu þeim.

Fannar (IP-tala skráð) 14.7.2012 kl. 12:22

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Fannar, lærðu að lesa!!!!!!  HVAR KALLA ÉG ÞIG RISAEÐLU??????

Jóhann Elíasson, 14.7.2012 kl. 14:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband