HALDIÐ ÁFRAM AÐ "DRULLA" YFIR BORGARBÚA OG LANDSMENN ALLA......

Þó að ég sé talsmaður þess að Reykjavíkurflugvöllur fari úr Vatnsmýrinni og þá er ég mjög hrifinn af þeirri hugmynd að nýr flugvöllur verði byggður á Lönguskerjum.  En ég geri mér fullkomlega grein fyrir því að þetta yrði mjög dýrt og ég veit ekki hvort þetta sé tæknilega framkvæmanlegt.  Niðurstaðan er sú að við höfum bara hreinlega ekki efni á þessu karpi núna um flugvöllinn og helsta vitið er að tryggja rekstur hans á núverandi stað til dæmis til 2024 og athuga þá hvort aðstæður til flutninga á flugvellinum hafi eitthvað breyst.  Það er eiginlega algjört lágmark að borgarstjóranefnan sýni borgarbúum og landsmönnum öllum þá lágmarkskurteisi að taka tillit til vilja þeirra og skoðana og hætti líka að blanda saman málefnum borgarinnar og einhverju "egótrippi" sínu.............
mbl.is „Ljóst að flugvöllurinn þarf að fara“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn H. Gunnarsson

Eftir því sem mér sýnist er bara hægt að hafa eina flugbraut á Lönguskerjum. Dugar það? ég hef komið út í Löngusker og það kom mér á óvart hve þetta er mikið svæði á fjöru.

Þorsteinn H. Gunnarsson, 3.10.2013 kl. 09:46

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Eins og ég sagði, í blogginu, þá veit ég bara ekki nóg um þetta svæði en ef er bara hægt að hafa eina flugbraut þarna þá er þessi möguleiki hreinlega úr sögunni  því ein flugbraut dugir engan veginn.  En ég þakka þér fyrir þitt innlegg.

Jóhann Elíasson, 3.10.2013 kl. 09:56

3 identicon

Ef þessi pistill er lesin þá sýnir hann og sannar að flugvöllurinn á að vera þar sem hann er; http://www.visir.is/rokin-um-flugvollinn-i-vatnsmyri-standast-alla-skodun!/article/2013710039977. Þar að auki væri gaman að vita hvernig á að fjármagna byggingu á nýjum flugvelli. Hvorki ríkissjóður eða borgarsjóður eru færir um það núna né næstu 10 - 15 árinn. Viðverðum að huga að því að ekki er hægt að loka Reykjavíkurflugvelli og byrja svo að byggja annann.

Kjartan (IP-tala skráð) 3.10.2013 kl. 13:47

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þetta eru bara mínar skoðanir.  Ég get ekki með nokkru móti séð að við getum byggt nýjan flugvöll nokkurs staðar.  Svo er eitt sem ekki hefur verið rætt en ef borgaryfirvöld vilja losna við flugvöllinn eru þau þá ekki um leið að skuldbinda sig til að greiða fyrir byggingu nýs flugvallar að hluta til eð öllu  leiti og hafa þau þá fjármagn til þess???????

Jóhann Elíasson, 3.10.2013 kl. 14:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband