EF MENN BRJÓTA DÓM SEM ÞEIR HAFA HLOTIÐ - ERU ÞÁ ENGIN ÚRRÆÐI NEMA ÞEIR FREMJI EINHVER ÓHÆFUVERK???.................

Vantar kannski ekki að skilgreina það hvað telst brot á nálgunarbanni?????   Samkvæmt því sem kom fram í Kastljósinu þá sagðist lögreglan ekkert geta gert vegna þess að konan hafði ekki orð fyrir neinum "líkamlegum skaða" af völdum mannsins. En minnsti hlutinn af áreit er líkamlegur eins kom svo skýrt fram í þættinum í kvöld.  Það er ekki neitt venjulegt sem þessi kona og fjölskylda hennar hefur gengið í gegnum. Það er nokkuð ljóst að þessi maður þarf á hjálp að halda og það fljótt áður en hann gerir eitthvað enn verra en hann hefur þegar gert..............


mbl.is „Hann ætlar að láta mig borga“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Þú kallar eftir skilgreiningu á nálgunarbanni.

Friðhelgi heimilis og einkalífs nýtur verndar stjórnarskrár. Hafi menn auk þess fengið á sig nálgunarbann þá getur verið hvers kyns athafnir eins og sending sms sem fallin er til að vekja ógn eða ótta, þá eru menn komnir yfir strikið.

Mjög sennilegt er að maðurinn sem í hlut á, eigi við mjög alvarleg veikindi að stríða. Auðvitað verður samfélagið að beita öllum tiltækum ráðum að koma í veg fyrir að eitthvað alvarlegt hljótist af.

Guðjón Sigþór Jensson, 8.5.2014 kl. 09:09

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ef það er þannig að ekki sé á hreinu út á hvað nálgunarbann gengur og ekki úrræði til að framfylgja því, þá getur verið að það sé ekki alveg á hreinu hvað þetta fyrirbæri er gagnvart löggjafanum þó svo að okkur almennum borgurum sé ljóst hvað þetta er.  Ég er alveg sammála þér með það að viðkomandi er alvarlega veikur og spurning um tíma hvenær eitthvað alvarlegt gerist........

Jóhann Elíasson, 8.5.2014 kl. 17:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband