ÞARNA VIRÐIST KOMIN "RAUNVERULEGA" ÁSTÆÐAN FYRIR ÞVÍ AÐ FLUGFERÐIR VORU FELLDAR NIÐUR.....

En forráðamenn Icelandair virðast ekki hafa nokkra löngun til að semja og bíða bara eftir því að stjórnvöld skeri þá úr "snörunni" og setji lög á verkfallið.......
mbl.is Flugáætlunin öll úr lagi gengin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Landfari

Finnst þér eðlilegt að samið sé við flugmenn um tífalda launahækkun miðað við almenn launþega innan ASÍ sem eru að reyna að halda verðbólgunni niðri. Við erum að tala um tífalda launahækkun í prósentum talið. Margfalt það í krónum talið því flugmenn eru ekki beint láglaunastétt hér á landi, öfugt við það sem manni skilst að viðgangist í Bandaríkjunum.

Eðlilegast væri að banna með öllu verkföll launþega með hálfa milljón eða meira í laun á mánuði.  Ef þeim finnast launin ekki nógu góð geta þer bara farið í aðra vinnu.

Svona hálunafólk á ekkert með að koma óorði á helsta baráttuvopn verkalýðsins sem er að berjast fyrir að eiga til hnífs og skeiðar.

Landfari, 12.5.2014 kl. 23:29

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Fréttirnar um launakröfur flugmanna eru  frá Icelandair komnar enn sem komið er höfum við ekki heyrt neitt frá hlið flugmanna í þessu máli.  Verkfallsvopninu er ekki beitt fyrr en full reynt er að samningar náist ekki og er þá sama hver á í hlut.  Ekki er nú víst að öllum finnist eðlilegt að banna verkföll hjá þeim sem eru með hærri laun en eitthvað visst það er ansi hætt við því að þeirra laun myndu lækka nokkuð hratt, en þú og fleiri viljið kannski að allir hafi það jafn skítt hér á landi eins og VG boðar???

Jóhann Elíasson, 13.5.2014 kl. 14:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband