AÐ REYNA ÞETTA ER BARA HREIN OG KLÁR ÖGRUN VIÐ VITIBORIÐ FÓLK...

Það er alveg á tæru að skipstjóri ber ábyrgð á vegferð skips síns og velferð farþega þess.  Honum ber að sjá til þess að gera allt sem í hans valdi stendur til þess að farþegarnir yfirgefi skipið á eins öruggan hátt og unnt er og ganga úr skugga um að ALLIR hafi yfirgefið skipið, þegar hann sjálfur yfirgefur það.  Það er ljóst að maðurinn uppfyllti EKKI þessar skyldur sínar og þá er alveg sama hvað maðurinn vælir og skælir, hann á bara að taka út sína refsingu eins og maður.  Það hefur komið í ljós að hann var með öllu óhæfur til að gegna þessu starfi.  Svo er örugglega með mun fleiri en það er mjög auðvelt að sinna þessu starfi þegar allt leikur í lyndi en það er þegar áföllin verð, sem reynir á menn............


mbl.is Hann hafi dottið í björgunarbátinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta er svona svipað og þegar að Geir Haarde og sjálfstæðisFLokkurinn reyndi að kenna öðrum en sjálfum sér um hrunið...benti í allar áttir og kenndi öðrum um.

Eini munurinn er sá að sennilega fær þessi skipstjóri 20 ár en Geir slapp með skrekkinn.

Helgi Jónsson (IP-tala skráð) 11.2.2015 kl. 15:04

2 identicon

Og Geir ræfillinn hafði sér ekki einu sinni til afsökunar að hafa verið á kvennafari eins og Schettino.

Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 11.2.2015 kl. 16:12

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það er skrítið hvernig "vinstra liðið" reynir alltaf að gera einhverjar aðstæður hliðstæðar því sem var á Íslandi en uppsker ekkert nema vorkunn yfir því hversu "heimóttarlegir" og þröngsýnir þeir eru.............

Jóhann Elíasson, 11.2.2015 kl. 16:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband