ÞAÐ ER ALVEG STÓRKOSTLEGT BULLIÐ SEM MENN LÁTA FRÁ SÉR FARA

En það virðist ekki hafa mikið með menntun manna að gera hvort þeir "hella" einhverri "steypu" yfir almenning eða ekki og gerist það í ÖLLUM heimhlutum.  Það vill bara svo til að mönnum með mikla menntun er oftar en ekki betur treyst en öðrum og frekar hlustað á þá en aðra.  Dæmi um þetta er þegar dr.  Hannes Hólmsteinn Gissurarson ræddum um Íslenska efnahagsundrið og hvernig "kvótinn" hefði eiginlega skapað það SJÁ HÉR.  Svo er skurðlæknir hérna á blogginu, sem virðist haldinn einhverri "þráhyggju" þess efnis að öll óhefðbundin lyf (sem ekki er ávísað á af læknum og þeir fá því engar tekjur af), séu bara eitthvað drasl og framleidd og seld í þeim eina tilgangi að blekkja fólk.  En það virðist vera að það sé síður en svo góð blanda, þegar menn fara að blanda saman menntun og trúarbrögðum (þessir menn virðast trúa því sem þeir segja eins og nýju neti)...............


mbl.is „Þeim er sama þó þeim sé nauðgað“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Sæll Jóhann, þeir læra að steypa í skóla sumir. Annars er það oft svo að það er tóm steypa sem borin er á borð í fjölmiðlum, sennilega er facebook á köflum áreyðanlegri. Innan um  grínið getur svo verið áróður. 

https://www.youtube.com/watch?v=drQETQ2iprU

Magnús Sigurðsson, 12.2.2015 kl. 14:46

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þakka þér fyrir innlitið Magnús.  Annars vil ég nú meina það að menntunin sem slík hafi ekkert með bullið og steypuna að gera, heldur er það hvernig sá sem á í hlut er, en vandamálið er að það er oft frekar hlustað á "menntafólkið" og tekið mark á því.  Ég er ekki að gera lítið úr menntun en hún er vandmeðfarin eins og svo margt annað............

Jóhann Elíasson, 12.2.2015 kl. 15:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband