ÞAÐ ER NÁTTÚRULEGA ÓÞOLANDI AÐ FÓLK GETI FENGIÐ HLUTINA Á LÆGRA VERÐI NOKKURS STAÐAR.

Það er orðið alveg með ólíkindum þetta væl í samtökum verslunar og þjónustu, alltaf.  Í staðinn fyrir að lýta í eigin barm og reyna að hagræða í eigin rekstri er verið að týna til allt mögulegt og ómögulegt í fjarumhverfi verslunarinnar og fjargviðrast út í það.  Þeir væla yfir því að fólk versli svo mikið á "netinu" en hvers vegna skyldi það nú vera?  Jú það er miklu ódýrara.  Þegar ég versla á "netinu" þá greiði ég flutningsgjöld, tolla og virðisaukaskatt, nákvæmlega eins og verslunarfyrirtækin en aftur á móti fæ ég ekki magnafslátt og sömu greiðslukjör og verslunarfyrirtækin en samt sem áður eru þær vörur sem maður kaupir á "netinu" 30% - 52% ódýrari heldur en í verslun hér á landi.  Það sem hefur mest áhrif, er hvort virðisaukaskattur erlendis er endurgreiddur af vörunni, það er til dæmis EKKI gert með vörur sem keyptar eru frá Englandi (hver ástæðan er veit ég ekki).  Samkvæmt þessu er álagning verslunarinnar hér á landi óheyrilega mikilFyrst og fremst er það mitt álit að neytendur hér á landi séu að greiða fyrir offjárfestingu Íslenskrar verslunar og bruðl..


mbl.is Kvarta undan Fríhöfninni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Innilega sammála þér Jóhann.

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 17.12.2015 kl. 11:27

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þakka þér fyrir innlitið Sigmar.  Já það er með ólíkindum hvað sumir eru alltaf tilbúnir til að leyta eftir ástæðum fyrir eigin mistökum hjá öðrum.

Jóhann Elíasson, 17.12.2015 kl. 14:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband