OG ENN HAMAST "VINSTRI HJÖRÐIN" OG FER FRJÁLSLEGA MEÐ STAÐREYNDIR

En auðvitað reynir þetta lið að afvegaleiða almenning í þessari umræðu eins og frekast er kostur, því ekki geta þau bent á nein lögbrot.  Og þingflokksformaður LANDRÁÐAFYLKINGARINNAR, sem dauðlangar til að verða formaður þess flokks, tekur alveg steininn úr, með ruglinu og lyginni, þegar hann staðhæfir að fjármunir hafi verið fluttir úr landi í skattaskjól í hruninu.  Við að lesa svona bull dettur manni helst í hug að viðkomandi sé eitthvað "tregur", í það minnsta er hann ekki alveg í lagi.  Það hefur oft komið fram að þessir fjármunir voru settir þarna löngu FYRIR hrun.  Samskonar bull kom frá Svndísi Svavarsdóttur, þó hún hefði nú vit á að ljúga ekki til um það sem áður var búið að gera alveg ljóst.


mbl.is „Óásættanleg hegðun forsætisráðherra“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Lesa betur hann segir FYRIR hrun.

Tt (IP-tala skráð) 3.4.2016 kl. 16:14

2 identicon

Þú ættir að lesa fréttina aftur til að dýpka skilning þinn á henni. Það sem þú setur fram sem fullyrðingu er í raun spurning. Hann býst svo sem við ákveðnu svari, en er langt því frá að fullyrða um efnið.

„Það sem við erum kannski að sjá hérna og mun­um lík­lega sjá frek­ar í þætt­in­um í kvöld; fóru þarna fjár­mun­ir út úr land­inu fyr­ir hrun sem fólk sá ekki sóma sinn í að koma með aft­ur til lands­ins eft­ir hrunið til að byggja upp at­vinnu hér á landi í miklu neyðarástandi?

Á hinn bóginn staðhæfir sjálfstæðismaðurinn Brynjar Níelsson, skv. fréttinni, að Hæstiréttur myndi ekki samþykkja stöðuleikaskattinn. Hæstiréttur taldi engu að síður auðlegðarskattinn löglegan á sínum tíma. Brynjar þarf því að rökstyðja fullyrðingar sínar betur, enda staðfest af Hæstarétti að heimildir ríkisins til skattheimtu eru ríflegar.

http://www.vb.is/frettir/audlegdarskattur-er-loglegur/104142/

KIP (IP-tala skráð) 3.4.2016 kl. 16:36

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Fótgönguliðar "Vinstri Hjarðarinnar" virðist ætla að styðja vel við bakið á sínu fólki og verja ruglið í þeim fram í rauðan dauðann. cool

Jóhann Elíasson, 3.4.2016 kl. 17:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband